Fimm starfsmönnum Kópavogsbæjar var sagt upp störfum í dag en stöðugildum var fækkað um sjö og hálft. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar í samtali við fréttastofu.
Stöðugildum á umhverfissviði var fækkað um tvö og fækkað var um eitt á skrifstofu umbóta og þróunar, skrifstofu mannauðs og kjara- og velferðarsviði. Þá var eitt ómannað stöðugildi lagt niður, og ekki verður ráðið í stöðugildi sem hefur verið tímabundin ráðning.
Eitt stöðugildi verði að hálfu næsta vor. Ásdís Kristjándóttir, bæjarstjóri í Kóvagi, sagði í samtali við mbl.is í október að ekki stæði til að ráðast í niðurskurð í Kópavogi.
Í skriflegu svari við spurningunni segir að í fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 sé samtals gert ráð fyrir um 325 milljóna króna hagræðingu og endurskoðun fjárheimilda. Hluti af þeim hagræðingaraðgerðum lúti að breytingum í skipulagi, sem hafi leitt til fækkunar stöðugilda um 7,5. Fimm starfsmenn hafi fengið uppsögn í kjölfarið.