Bandarískir embættismenn greindu frá þessari ákvörðun í dag, og segja hana koma í kjölfar rannsóknar á viðskiptaháttum viðkomandi ríkja og Evrópusambandsins; hvort þessi hagkerfi væru að niðurgreiða eigin framleiðslu á vörum sem seldar eru til Bandaríkjanna.
Aðgerðirnar sem greint var frá í dag snerta Evrópusambandið, Kína, Japan, Suður-Kóreu, Indland, Indónesíu, Malasíu, Singapore, Sviss, Taiwan, Tæland, Víetnam, Bangladess og Kambódíu. Athygli vekur að Kanada er ekki í þessum hópi, en hart tollastríð hefur staðið yfir milli nágrannaríkjanna undanfarna mánuði.
Allt að tuttugu prósenta tollur verður lagður á ákveðnar vörutegundir frá Kína og Víetnam, en fimmtán prósent á vörutegundir frá Evrópusambandinu. Breska dagblaðið Financial Times segir að Noregur og Mexíkó hafi einnig verið til rannsóknar hjá bandarískum stjórnvöldum, en þau ríki eru ekki með á listanum sem greint var frá í dag.
Rannsóknin á meintum ólöglegum viðskiptaháttum hófst í mars, eftir að Hæstiréttur Bandaríkjanna bannaði Donald Trump Bandaríkjaforseta að beita refsitollum.
Evrópusambandið hafnar niðurstöðunni
„Við höfnum þeirri niðurstöðu að í Evrópu sé staðið að offramleiðslu,“ segir Olof Gill, talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í orðsendingu til fjölmiðla í dag. „Þvert á móti, þá er Evrópa meðal þeirra hagkerfa sem þurfa að kljást hvað mest við offramleiðslu [annars staðar frá],“ segir Gill. „Evrópusambandið og Bandaríkin hafa bæði áhyggjur af offramleiðslu á heimsvísu og við hörmum að ekki sé hægt að starfa saman gegn þessu.“
Engin viðhöfn í Rósagarðinum í þetta skiptið
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um þessa ákvörðun sem kynnt var í dag, ólíkt því sem hann gerði í apríl í fyrra. Þá hélt Trump sérstakan viðburð í Rósagarðinum við Hvíta húsið til að greina frá tollum sem hann ætlaði að leggja á nánast öll önnur ríki í heiminum.