Úrskurður Landsréttar þess efnis var kveðinn upp á mánudag en með honum var úrskurður Héraðsdóms Vesturlands frá 12. nóvember staðfest.
Atli var dæmdur fyrir að verða Einari Erni Birgissyni, viðskiptafélaga sínum, að bana með hamri þann 8. nóvember árið 2000. Þeir rifust um peninga og barði Atli Einar í höfuðið með hamri og kom honum fyrir í hrauni nærri Grindavík, þar sem hann fannst viku síðar.
Fékk uppreist æru og sátt í Strassborg
Árið 2016 fékk hann uppreist æru og þá hófst hann handa við að reyna að afla lögmannsréttinda sinna aftur en hann var sviptur þeim, bæði vegna dómsins fyrir manndráp og þar sem hann varð gjaldþrota. Samkvæmt þágildandi lögum um lögmenn var óflekkað mannorð forsenda lögmannsréttinda auk þess sem lögmaður mátti ekki hafa misst forræði fjár síns.
Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á kröfur Atla um niðurfellingu sviptingar lögmannsréttinda en Landsréttur sneri úrskurði þess efnis seinna sama ár.
Í kjölfar þess fór Atli með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Ríkið gerði við hann sátt vegna málarekstursins í Strassborg og viðurkenndi að brotið hefði verið á réttindum hans til réttlátrar málsmeðferðar. Það var gert vegna fyrri dóms MDE í máli manns þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið á réttindum hans vegna ólögmætrar skipunar Landsréttardómara.
Aflaði ekki umsagnar
Í úrskurði Landsréttar nú eru rakin þau almennu hæfisskilyrði laga um lögmenn sem umsækjandi um málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum þarf að fullnægja. Fyrir hafi legið að bú Atla hefði áður verið tekið til gjaldþrotaskipta og þá hefði hann áður hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað.
Eftir breytingu með lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna afnáms ákvæða um uppreist æru væri nú meðal annars áskilið í lögum um lögmenn að til þess að víkja mætti frá skilyrðum um að hafa aldrei hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað og að hafa ekki orðið gjaldþrota yrði að afla umsagnar Lögmannafélags Íslands. Slík umsögn lægi ekki fyrir í málinu þrátt fyrir lagaskyldu þar um.
Samkvæmt orðalagi ákvæðis um öflun umsagnar Lögmannafélagsins það vafalaust verið talið hvíla á þeim sem sóttist eftir málflutningsréttindum, þar með talið á grundvelli kröfu um niðurfellingu réttindasviptingar, að óska eftir slíkri umsögn. Í ljósi þess að slík umsögn væri nauðsynlegur undanfari þess að til álita kæmi að víkja frá almennu hæfisskilyrðunum væri þegar af þeirri ástæðu ekki fallist á kröfu Atla og hinn kærði úrskurður staðfestur.
Hvorki var úrskurðaður málskostnaður í héraði né kærumálskostnaður fyrir Landsrétti en Atli flutti mál sitt sjálfur á báðum dómstigum.