Alexandra reifar söguna í færslu á Facebook. Sagan hófst í nóvember árið 2016 þegar hún sendi tölvupóst á myndlistarmanninn Tolla í von um að verða sér úti um prent af mynd fyrir vinkonu sína.
„Ég átti vinkonu sem hafði árum saman verið mikill aðdáandi Tolla og var alveg sérstaklega hugfangin af einni tiltekinni mynd eftir hann. Hún hafði margoft talað um þessa mynd og ég vissi hvað hún var henni kær. Á þessum tíma var vinkona mín að ganga í gegnum erfiðleika og mig langaði ekkert meira en að geta glatt hana,“ skrifaði Alexandra.
Hún lýsir því hvernig hún sjálf hafði nýlokið við háskólanám og „átti ekki krónu með gati“ auk þess að hafa „ekki hundsvit“ á því hvernig maður stæði að því að festa kaup á listaverki.
Frá hjarta til hjarta
Tolli svaraði þó tölvupóstinum og bauð henni í heimsókn á vinnustofu sína. Þegar hún mætti sýndi hann henni tvö málverk sem voru álík umræddu málverki.
„Svo sagði hann mér bara að velja. Hvort annað þessara verka gæti ekki glatt vinkonu mína, þótt það væri ekki nákvæmlega myndin sem hún hafði haft augastað á. Á meðan ég skoðaði myndirnar hugsaði ég með mér: Jæja, Alex. Alltaf kemurðu þér í einhver vandræði. Hvernig í fjandanum ætlarðu að borga fyrir þetta?“
Þrátt fyrir það valdi hún málverk. Þegar Alexandra spurði hvernig hann vildi gera upp svaraði Tolli að það yrði engin greiðsla.
„Þessi mynd væri gefin frá hjarta til hjarta,“ skrifar hún.
„Það var enginn annar í húsinu. Engin vitni, enginn að fylgjast með og engin ástæða fyrir hann að gera þetta önnur en hrein og klár góðmennska. Þennan dag einsetti ég mér að þegar ég yrði loksins alvöru fullorðin og hefði efni á að fjárfesta í listaverkum, þá yrði fyrsta verkið mitt eftir Tolla.“
Alexandra tekur fram að myndin hafi gert nákvæmlega það sem hún átti að gera, að gleðja vinkonu hennar.
Gleymir sumu aldrei
Í dag er Alexandra orðin bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og rann upp sá dagur að hún sá fyrir sér að festa kaup á málverki. Leiðin lá því rakleiðis á vinnustofu Tolla.
„Í dag kvaddi ég svo Tolla á vinnustofunni hans, í þetta sinn sem stoltur eigandi að mínu eigin verki eftir hann, með sömu hlýjuna í hjartanu og þegar ég kvaddi hann fyrir tíu árum,“ skrifar Alexandra.
„Það eru sumir hlutir sem maður gleymir einfaldlega aldrei. Og stundum tekur það tíu ár að ná markmiðum, hversu stór eða smá sem þau kunna að virðast.“