Meirihluti þingmanna á ísraelska þinginu samþykkti í dag frumvarp um að setja á fót rannsóknarnefnd sem myndi rannsaka hvað fór úrskeiðis í öryggismálum landsins í aðdraganda árásar Hamas 7. október 2023.
Við fyrstu umræðu í dag greiddu 65 þingmenn atkvæði með stofnun slíkrar nefndar en 50 voru á móti. Þingmaður úr flokki Gadi Eisenkots lagði frumvarpið fram. Eisenkot fékk umboð til stjórnarmyndunar eftir þingkosningar í lok október. Meðal kosningaloforða hans var að stofna fljótt slíka nefnd til að rannsaka aðdraganda 7. október. Þann dag drápu Hamas-liðar yfir 1.200 manns í Ísrael.
Benjamín Netanjahú, sem var við völd í október 2023, hefur lagst gegn stofnun slíkrar nefndar. Hann vill að stofnuð verði nefnd sem stjórnmálamenn skipi í.
Frumvarp um nefndina, sem þingmennirnir samþykktu í dag að stofna, fer næst til þingnefndar og svo verða umræður um hana þrisvar sinnum á þinginu. Eftir það getur frumvarpið orðið að lögum.
Hugmyndin er að í nefndinni verði fimm manns og að hún sendi frá sér bráðabirgðaskýrslu innan eins árs frá stofnun.
Flokkur Eisenkots segir rannsóknarnefndina nauðsynlega til að komast að sannleikanum og draga lærdóm til að tryggja öryggi Ísraels. Margir Ísraelar hafa krafist sjálfstæðrar rannsóknar á aðdraganda árásanna þennan dag.
Eftir 7. október 2023 hófu Ísraelar linnulausar árásir á Gaza. Þeir hafa drepið hið minnsta 74.000 manns og verið sakaðir um þjóðarmorð. Samið var um vopnahlé fyrir ári. Árásirnar hafa verið færri síðan en neyðin á Gaza er enn mikil. Skortur er á öllum helstu nauðsynjum og stór hluti íbúa missti heimili sín og hefst við í tjöldum.