Landhelgisgæslan og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa verið kallaðar út vegna fiskiskips í vanda austur af landinu. Samhæfingarstöð almannavarna hefur verið virkjuð. Landhelgisgæslan segist ekki geta tjáð sig frekar um málið og mun senda frá sér tilkynningu síðar í kvöld.
Fréttin verður uppfærð.