„Við leggjum af stað frá styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli klukkan fimm í dag og göngum svo suður Lækjargötu og upp Amtmannsstíg og ljúkum göngunni á Bríetartorgi með samverustund og kórsöng,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women.
Sjónum verður beint að hatursfullum og meiðandi ummælum og orðræðu á netinu. Ingileif og María Rut leiða gönguna og deila sömuleiðis sinni reynslu.
„Þær ætla aðeins að fjalla um það hvernig þær hafa lent í hatursfullum ummælum, hafa verið leiðandi í baráttu fyrir betri heimi, mannréttindum, mannréttindum hinsegin fólks og gegn kynbundnu ofbeldi,“ segir Stella.
Stella hvetur fólk til þess að mæta og láta ekki veðrið hafa áhrif á sig. Hún lofar því að það verði hægt að ylja sér með heitu kakói.
„Við viljum gjarnan sjá sem flest og öll hjartanlega velkomin. En ég vil sérstaklega leggja áherslu á að bjóða karlmenn velkomna. Við þurfum öll að standa saman til þess að sporna gegn kynbundnu ofbeldi. Við náum einungis árangri með því að gera það saman og þess vegna vil ég sérstaklega beina orðum mínum til karlmanna og bjóða þá velkomna að mæta í dag,“ segir hún.
Hér má sjá frá ljósagöngunni árið 2024.
Átakið hefst í dag, 25. nóvember, sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynbundnu ofbeldi og stendur til 10. desember, sem er mannréttindadagur Sameinuðu þjóðanna.
„Við munum birta á okkar miðlum samantekt á ummælunum sem hafa fallið á netinu og sýna hatursfull og meiðandi ummæli sem eru svolítið sláandi og við munum birta þau á þessum tíma.“