Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, sagði í bókun sinni að aðgerðaáætlunin væri tilkomin vegna tillögu sem hún lagði fram árið 2021 um að aðgerðaáætlun gegn rasisma í skólum og frístundaheimilum yrði mótuð.
Hlédís Maren Guðmundsdóttir, fulltrúi Miðflokksins, sagði í bókun sinni að varhugavert væri að tengja vanhugsuð orð barna við lögbrot og taldi hættu á að of mikil hætta á kynþáttahatri ýti undir fordóma sem aðgerðunum er ætlað að vinna gegn.
Ráðið kom saman til fundar í gær og fékk þar meðal annars kynningu á því hvernig starfsfólk í skólum og frístundastarfi Reykjavíkurborgar eigi að bregðast við þegar barn verður fyrir rasisma.
Í kynningunni eru nefnd dæmi um rasisma en þar á að segja barni að fara heim til sín vegna uppruna síns eða tala ensku við einhvern vegna útlits þess.
Í verklaginu er greint á milli staks atviks, þar sem barn skilur til dæmis ekki merkingu orða sem það lætur falla í leik, og endurtekinna atvika þar sem barn notar orð til að særa eða ögra. Í báðum tilvikum á starfsfólk að láta stjórnendur vita án tafar og hafa samband við foreldra barnsins sem varð fyrir fordómunum og barnsins sem beitti þeim. Sérstakt lausnateymi tekur málið fyrir og allur hópurinn á að fá fræðslu sem þykir viðeigandi út frá aldri barnanna. Við endurtekin atvik er starfsfólki bent á að málið geti verið bráðamál.
Hatursorðræða eigi ekki að viðgangast
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar, sem mynda meirihluta í ráðinu, vilja að verklaginu sé ávallt fylgt og að árangur aðgerðanna verði metinn.
„Hatursorðræða á aldrei að viðgangast í skóla- og frístundastarfi. Meirihluti skóla- og frístundaráðs þakkar fyrir kynningu á aðgerðaáætlun gegn rasisma og fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið á þessu sviði í skóla- og frístundastarfi borgarinnar,“ segir í bókun meirihlutans.
Þar segir jafnframt að öll börn og ungmenni eigi að finna að þau séu velkomin í skóla- og frístundastarf óháð uppruna, stöðu eða stétt. Starfsfólk þurfi þekkingu og stuðning til að geta brugðist við rasisma og hatursorðræðu, hvort sem slíkt beinist gegn börnum, ungmennum eða starfsfólki. Fulltrúarnir sem mynda meirihlutann eru Bjarni Fritzson og Hafrún Kristjánsdóttir úr Sjálfstæðisflokki, Þorvaldur Davíð Kristjánsson úr Viðreisn og Magnea Gná Jóhannsdóttir úr Framsóknarflokki.
Stein Olav Romslo, fulltrúi Samfylkingarinnar, sagðist vilja að starfsfólk fengi stutta fræðslu þar sem tekin eru dæmi um tiltekin rasísk ummæli og sýnt hvernig megi bregðast við þeim á staðnum. Skýrir verkferlar skipti öllu máli, að því er fram kemur í bókun hans.
Öll börn eigi rétt á öruggu skólaumhverfi
Hlédís Maren lagði áherslu á að öll börn eigi rétt á öruggu skólaumhverfi þar sem þau njóta virðingar óháð uppruna, tungumáli og litarhafti.
„Í kynningu á aðgerðaáætlun gegn rasisma voru ítrekað settar fram fullyrðingar um að rasismi og notkun tiltekinna orða fælu í sér brot á alþjóðalögum. Slíkar fullyrðingar kalla á mun nákvæmari lagalega afmörkun. Nauðsynlegt er að greina á milli fordóma, óviðeigandi orðnotkunar, mismununar og háttsemi sem telst ólögmæt samkvæmt tilteknum lagaákvæðum,“ segir í bókun Hlédísar.
Hún telur mikilvægt að viðbrögð við hegðun barna byggist á faglegu mati á aldri, þroska, ásetningi, aðstæðum og samhengi hverju sinni. Skólunum beri að leiðbeina börnum og stuðla að gagnkvæmri virðingu.
„Gæta þarf meðalhófs og forðast ber að setja vanhugsuð ummæli sjálfkrafa í samhengi við lögbrot. Þá er ekki útséð með að ofuráhersla á kynþátt geti ekki stuðlað að því sem átakinu er ætlað að leysa. Stefnumótun verður að haldast í hendur við mælanlegan árangur. Í ljósi þess er kallað eftir skýrari upplýsingum um umfang vandans, forsendur aðgerðaáætlunarinnar og hvernig árangur hennar verður metinn,“ segir í bókuninni.
Börnin eigi ekki að þurfa að taka á atvikum sjálf
Sanna Magdalena Mörtudóttir, fulltrúi Vinstrisins, segir að skólasamfélagið beri ábyrgð á því að bregðast skjótt og vel við kynþáttafordómum og kynþáttahyggju í skóla- og frístundastarfi. Börn sem verða fyrir fordómunum og foreldrar þeirra eigi ekki sjálf að þurfa að taka á slíkum atvikum.
„Aðdraganda þess verklags sem nú hefur verið mótað má rekja til loka árs 2021 þegar undirritaður borgarfulltrúi lagði fram tillögu um að skóla- og frístundasviði yrði falið að útbúa aðgerðaáætlun gegn rasisma í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar. Markmiðið með aðgerðaáætluninni er að skýrir verkferlar séu til staðar um hvernig skuli bregðast við rasískum atvikum í skóla- og frístundastarfi þannig að skólasamfélagið bregðist skjótt og vel við í stað þess að ábyrgðin á því að eiga við slíkt falli á börn sem verða fyrir kynþáttafordómum eða foreldra þeirra. Mikilvægt er að skýrir verkferlar séu til staðar í öllu skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar og að þeim sé framfylgt,“ segir í bókun Sönnu.