Salvör Nordal umboðsmaður barna segir ekki vel búið að börnum á Íslandi. Mörg þeirra fái ekki viðeigandi stuðning og misjafnt eftir sveitarfélögum hvernig þeim reiðir af.
„Ég held að við getum ekki státað okkur af því sérstaklega að vera barnvænt samfélag.“
Salvör var gestur á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Hún segir stóran hluta barna í góðum málum. Þau hafi sterkt félagslegt bakland og þurfi ekki sérstakan stuðning. Þau sem eftir sitja fái aftur á móti ekki þann stuðning sem þau þurfa.
Mismunað eftir búsetu
„Sá hópur barna sem er að lenda í vanda eða þarf mikinn stuðning, það er sá hópur sem situr eftir. Við náum ekki utan um hann eins og ber að gera. Ég leyfi mér að fullyrða að við búum ekki vel að börnunum okkar.“
Það sé misjafnt eftir skólum og sveitarfélögum hvernig börnum vegnar. Það sé áhyggjuefni að börnum sé mismunað eftir búsetu og að þau fái ekki sömu tækifæri.
Afleiðingar stuðningsleysis geti verið dauðans alvara
Þá sé bið eftir greiningum viðvarandi, til dæmis á einhverfu, þar á meðal frumgreiningum hjá sveitarfélögunum, sem börnin þurfi til að komast á opinbera biðlista.
Jafnvel þó að börn fái greiningu sé ekki þar með sagt að þau fái þann stuðning sem þau þurfa – til dæmis ef ekki eru til fjármunir til að veita hann. Afleiðingar þess geti verið dauðans alvara.
Salvör segir mikið vanta upp á upplýsingar um stöðu barna á biðlistum. Illa sé haldið utan um þær og erfitt að átta sig á stöðunni.
„Því það er auðvitað alveg fyrsta skrefið þegar við erum að takast á við einhver vandamál að vita hvar við stöndum. Það er alveg lágmark.“
„Við bara verðum að fara að taka okkur saman í andlitinu“
Spurð um stöðu fósturbarna segir hún það bera að sama brunni. Staðan virðist versna fremur en batna þótt ný lög um barnavernd og farsæld barna séu ágæt. Þá standi eftir spurningin um hvernig eigi að innleiða þau. Þar sé oft brotalöm.
„Það er aftur og aftur fólk að segja frá sömu reynslu, sömu sögur, nýir foreldrar með ný börn en staðan er alltaf sú sama. Við þurfum að taka utan um framkvæmdina, um úrræðin.“
Það sé eitt af hlutverkum gæða- og eftirlitsstofnunar að setja viðmið um gæði barnaverndarþjónustu samkvæmt lögum. Það hafi þó enn ekki verið gert þar sem fjármagn skorti til þess.
„Við bara verðum að fara að taka okkur saman í andlitinu og horfast í augu við það að hér er mikill vandi. Þetta er ekki stór hópur barna sem er í vanda en það er hópur barna sem er að ströggla í skólakerfinu, sem er kominn í vanda á unglingsárum og við þurfum að taka utan um þennan hóp,“ segir Salvör.
„Við erum bara 400 þúsund manna samfélag og maður hugsar bara svo oft hvernig stendur á því að kerfið er orðið svona þungt og það eru svo margir að velkja hlutunum fram og til baka í þessu kerfi.“