Sýknudómi Gergios Ntentes hefur verið áfrýjað til Landsréttar. Gergios var ákærður fyrir að verða manni að bana við Skjólbraut á Kársnesi í Kópavogi á síðasta ári. Hann var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í mánuðinum.
Ómar Örn Bjarnþórsson verjandi hans staðfestir að dóminum hafi verið áfrýjað en Vísir greindi fyrst frá.
Ómar segir það hafa verið viðbúið að málinu yrði áfrýjað. Hann telji þó að það fari á sama veg fyrir Landsrétti.
Georgios, sem er grískur ríkisborgari, og hinn látni, Portúgali, höfðu þekkst í nokkur ár og voru ágætir vinir. Georgios heimsótti vin sinn á heimili hans föstudagskvöldið 28. október í fyrra. Hann fannst svo látinn á heimili sínu á Kársnesi á sunnudagsmorgni.
Lögregla taldi fyrst að maðurinn hefði sjálfur veitt sér áverkana. Nokkrum dögum síðar var Georgios handtekinn og hnepptur í gæsluvarðhald. Honum var síðan sleppt en aftur úrskurðaður í gæsluvarðhald þegar fleira kom í ljós við rannsóknina.
Georgios var ákærður fyrir að stinga manninn þrisvar sinnum í kviðinn, skera hann, stinga með egghvössu áhaldi í hálsinn og slá manninn með þeim afleiðingum að hann lést. Hann neitaði sök fyrir dómi.