Mikill viðbúnaður var í smábæ í Iowa í Bandaríkjunum í dag þegar her landsins sprengdi 4.500 kíló af gömlu sprengiefni sem lá undir skemmdum.
Talið var nauðsynlegt að framkvæma sprengingarnar því annars væri hætta á því að sprengjurnar gætu sprungið sjálfkrafa. Ekki þótti þorandi að reyna að flytja þær. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að samkvæmt fyrstu fregnum frá Iowa hafi aðgerðin gengið „framar öllum vonum“.
Töluvert er um landbúnað í smábænum en þar er líka sprengjugeymsla Bandaríkjahers. Mikil umræða hefur verið um sprengiefnið síðustu daga. Áhyggjur hafa verið af að eitraður reykur með blýögnum bærist yfir heimili, akra og búfénað. Íbúum næst sprengistaðnum var gert að yfirgefa heimili sín.
Upphaflega átti að sprengja efnið í síðustu viku en því var frestað af ótta við mengun sem gæti ógnað heilsu almennings. Dómstóll leyfði sprengingarnar með úrskurði á mánudag.
Sprengistaðurinn er í um 240 kílómetra fjarlægð frá Des Moines, höfuðborg Iowa-ríkis. Fréttamaður New York Times segir að sprengingarnar hafi heyrst í 16 kílómetra fjarlægð.