Frumvarp velferðarnefndar um tímabundin framlög ríkisins til almenna íbúðakerfisins var samþykkt með hraði á Alþingi í dag.
Frumvarpið var óvenjulegt að því leyti að það var lagt fram af velferðarnefnd en ekki félagsmálaráðherra. Mælt var fyrir málinu í síðustu viku og var það klárað í dag þar sem það fór í gegn án nokkurrar umræðu.
Með frumvarpinu fær ríkið tímabundna heimild til að greiða stofnframlag sveitarfélaga til uppbyggingar almennra íbúða, þannig að hægt verði að byggja eða kaupa hagkvæmar leiguíbúðir þótt sveitarfélag geti ekki lagt fram sinn hlut.
Hingað til hafa sveitarfélög lagt fram 12 prósent af stofnframlagi á móti 23 prósenta framlagi ríkisins en heimild ríkisins til að greiða allt framlagið gildir til ársloka 2027. Sveitarfélög hafa þó enn heimild til að greiða sinn hluta framlagsins, kjósi þau svo.
Frumvarpið var liður í samkomulagi sem gert var í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði þar sem markmiðið er að fjölga íbúðum um eitt þúsund á hverju ári út samningstímann, sex hundruð í gegnum stofnframlög í almenna íbúðakerfinu og 400 íbúðum í gegnum hlutdeildarlán.
Þingmenn meirihlutans greiddu atkvæði með frumvarpinu, einn stjórnarandstæðingur greiddi atkvæði gegn því en aðrir þingmenn sátu hjá.
Þingmenn minnihlutans gagnrýndu málsmeðferðina, bæði það að frumvarpið hafi verið lagt fram af nefndinni en ekki ráðherra og málhraðann. Umfjöllun í nefndinni hafi verið rýr og ekki hafi verið veitt rými fyrir umsagnir eða gestakomur á fundi nefndarinnar.