Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í gær fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Í tilkynningu þess efnis til Kauphallar sagði að gert væri ráð fyrir 344,1 milljón króna rekstrarafgangi samstæðunnar, sem væri 9,5 milljónum króna meiri afgangur en við fyrri umræðu áætluninnar.
„Ábyrg fjármálastjórn snýst fyrst og fremst um að fara vel með skattfé bæjarbúa og forgangsraða verkefnum með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Þrátt fyrir krefjandi efnahagsaðstæður gerum við ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu og að skuldir bæjarins haldist óbreyttar. Á næsta ári eru fyrirhugaðar umfangsmiklar fjárfestingar, ekki síst í uppbyggingu nýrra skóla og bættri aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur. Við leggjum jafnframt áherslu á að efla menntun með fjölgun kennara, styrkja þjónustu við fjölskyldur og bæta þjónustu við eldri bæjarbúa,“ var meðal annars haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra.
Stóð ekki til í lok október
Haft var eftir Ásdísi á mbl.is þann 29. október síðastliðinn að ekki stæði til að ráðast í niðurskurð í Kópavogi en tilefni viðtalsins var umfangsmikill niðurskurður í Reykjavík og Hafnarfirði nokkrum dögum áður.
„Auðvitað erum við alltaf að skoða hvernig við getum hagrætt í rekstri til að fara betur með fé skattgreiðenda. Við erum að skoða slíkar leiðir en eins og sakir standa þá erum við ekki að fara í niðurskurð,“ sagði Ásdís við Moggann.
Hagræða um 325 milljónir króna
Vísir fékk í morgun veður af uppsögnum á bæjarskrifstofum Kópavogs og spurði upplýsingafulltrúa bæjarins hvort nokkuð væri til í því.
Í skriflegu svari við spurningunni segir að í fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 sé samtals gert ráð fyrir um 325 milljóna króna hagræðingu og endurskoðun fjárheimilda. Hluti af þeim hagræðingaraðgerðum lúti að breytingum í skipulagi, sem hafi leitt til fækkunar stöðugilda um 7,5. Fimm starfsmenn hafi fengið uppsögn í kjölfarið.
Á umhverfissviði hafi stöðugildum verið fækkað um tvö og stöðugildum hafi verið fækkað um eitt á skrifstofu umbóta og þróunar, skrifstofu mannauðs og kjara og velferðarsviði.
Þar fyrir utan hafi eitt ómannað stöðugildi verið lagt niður, ekki verði ráðið í stöðugildi sem hefur verið tímabundin ráðning og eitt stöðugildi verði hálft næsta vor.
Sameina deildir
Umtalsverðar breytingar hafi verið gerðar á skipulagi umhverfissviðs, sem hafi meðal annars falið í sér að skipulagsdeild og byggingardeild voru sameinaðar í skrifstofu skipulags- og byggingarmála.
„Í heild er gert ráð fyrir að hagræðing vegna breytinga í skipulagi sé um 160 milljónir króna á ársgrundvelli en áætluð áhrif á fjárhagsáætlun 2027 eru um 121 milljóni króna að teknu tilliti til kjarasamningsbundinna réttinda þeirra starfsmanna sem fá uppsögn.“