Frumvarpið var samþykkt samhljóða á Alþingi í dag en fimmtíu og sex þingmenn greiddu atkvæði með því. Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum sem Logi Már Einarson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra lagði fram. Allsherjar- og menntamálanefnd bárust tíu umsagnir um frumvarpið auk minnisblaðs frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.
Lagabreytingin þýðir að hámarksrefsing fyrir stórfelld eða ítrekuð brot gegn höfundalögum verður sex ár í stað tveggja og segir í nefndaráliti að markmiðið sé að sporna við sjóræningjastarfsemi, það er ólögmætri dreifingu og sölu höfundaréttarvarins efnis á netinu í atvinnuskyni og styrkja þannig stöðu rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði.
Eru innlendir fjölmiðlar sérstaklega nefndir í því samhengi.
Skipa starfshóp sem meðal annars á að skoða skattlagningu
Í meirihlutaáliti allsherjar- og menntamálanefndar segir sömuleiðis að þótt frumvarpinu sé ekki ætlað að ná til þeirra sem hlaða niður eða streyma ólöglegu efni sé ljóst að tjónið fyrir rétthafa felist meðal annars í því að þessir einstaklingar kaupi ekki efnið með lögmætum hætti. Því sé mikilvægt að auka vitund á meðal almennings um brotin.
Einnig segir í áðurnefndu áliti að verið sé að færa íslenska löggjöf nær því sem gerist á flestum Norðurlöndum og öðrum Evrópuríkjum og að stórfelld brot gegn hugverkaréttindum geti valdið gríðarlegu tekjutapi fyrir rétthafa og haft þau afleiddu áhrif að draga úr nýsköpun og efnisframleiðslu.
Á ráðstefnu Sýnar árið 2024 kom fram að áætlað tekjutap af hugverkastuldi hér á landi, vegna ólöglegs streymis og niðurhals á sjónvarpsefni, gæti numið allt að fjórum milljörðum króna árlega.
Samhliða frumvarpinu hefur menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið einnig sett á fót starfshóp sem hefur það hlutverk að skoða og leggja til tillögur að fleiri úrræðum svo sporna megi enn frekar við ólögmætri sjóræningjastarfsemi samhliða þyngri refsingu. Á hópurinn að skoða tillögur sem lagðar hafa verið til í nágrannaríkjum og leggja til leiðir svo stuðla megi að vitundarvakningu meðal almennings.
Jafnframt á að leita leiða til að skattleggja tekjur af sjóræningjastarfsemi með því að hafa uppi á raunverulegum eigendum félaga sem veita þjónustuna hér á landi.
Lögregla má hlera og gera ávinning upptækan
Í frumvarpinu er einnig greint frá ríkari rannsóknarúrræðum lögreglu ef grunur er um brot á höfundalögum og má þar nefna símahleranir, fjarskiptaeftirlit og alþjóðlegt samstarf. Hlerun og öflun upplýsinga um fjarskipti verður þó aðeins heimil við rannsókn alvarlegra brota.
Þá fá yfirvöld auknar eignaupptökuheimildir sem gerir yfirvöldum kleift að ganga lengra í að svipta brotamenn fjárhagslegum ávinningi af brotastarfsemi. Einnig eykst fyrningarfrestur brota úr fimm árum í tíu.
Í minnisblaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis er sömuleiðis fjallað um tengsl streymis- og sjóræningjasíðna við skipulagða brotastarfsemi og er vísað til rannsókna Hugverkastofu Evrópusambandsins og Europol í því samhengi. Segir að niðurstöður rannsóknanna sýni að brot á hugverkaréttindum séu nátengd starfsemi skipulagðra glæpahópa og öðrum tegundum alvarlegrar brotastarfsemi.
Er fjallað um að síðurnar séu oft reknar af skipulögðum glæpanetum sem afli milljóna evra í tekjur með áskriftum, auglýsingum og endursölu þjónustu.
Vísir er í eigu Sýnar.