Salvör Nordal umboðsmaður barna segir að ekki sé vel búið að börnum á Íslandi. Mörg þeirra fái ekki þann stuðning sem þau þurfa og misjafnt eftir sveitarfélögum hvernig þeim reiðir af.
„Ég held að við getum ekki státað okkur af því sérstaklega að vera barnvænt samfélag,“ sagði Salvör á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Stór hluti barna væri í góðum málum, hefðu sterkt félagslegt bakland og þyrftu ekki sérstakan stuðning. Þau sem eftir sætu fengju aftur á móti ekki þann stuðning sem þau þyrftu.
Mismunað eftir búsetu
„Sá hópur barna sem er að lenda í vanda eða þarf mikinn stuðning er sá hópur sem situr eftir. Við náum ekki utan um hann eins og ber að gera. Ég leyfi mér að fullyrða að við búum ekki vel að börnunum okkar.“
Misjafnt sé eftir skólum og sveitarfélögum hvernig börnum vegnar. Það sé áhyggjuefni að börnum sé mismunað eftir búsetu og að þau fái ekki öll sömu tækifæri.
Afleiðingar stuðningsleysis getur verið dauðans alvara
Þá sé viðvarandi bið eftir greiningu, til dæmis á einhverfu, þar á meðal frumgreiningu hjá sveitarfélögunum sem börnin þurfa til að komast á opinbera biðlista.
Jafnvel þó að börn fái greiningu sé ekki þar með sagt að þau fái þann stuðning sem þau þurfa, til dæmis ef ekki eru til fjármunir til að veita hann. Afleiðingar þess geti verið dauðans alvara.
Salvör segir mikið vanta upp á upplýsingar um stöðu barna á biðlistum. Illa sé haldið utan um þær og erfitt að átta sig á stöðunni.
„Því það er auðvitað fyrsta skrefið þegar við erum að takast á við einhver vandamál að vita hvar við stöndum. Það er alveg lágmark.“
„Við bara verðum að fara að taka okkur saman í andlitinu“
Um stöðu fósturbarna segir Salvör að það beri að sama brunni. Staðan virðist versna fremur en batna þótt ný lög um barnavernd og farsæld barna séu ágæt. Þá standi eftir spurningin um hvernig eigi að innleiða þau. Þar sé oft brotalöm.
„Fólk er aftur og aftur að segja frá sömu reynslu, sömu sögur, nýir foreldrar með ný börn en staðan er alltaf sú sama. Við þurfum að taka utan um framkvæmdina, um úrræðin.“
Það sé eitt af hlutverkum gæða- og eftirlitsstofnunar að setja viðmið um gæði barnaverndarþjónustu samkvæmt lögum. Það hafi þó enn ekki verið gert þar sem fjármagn skorti til þess.
„Við bara verðum að fara að taka okkur saman í andlitinu og horfast í augu við það að hér er mikill vandi. Þetta er ekki stór hópur barna sem er í vanda en það er hópur barna sem er að ströggla í skólakerfinu, sem er kominn í vanda á unglingsárum og við þurfum að taka utan um þennan hóp,“ segir Salvör.
„Við erum bara 400 þúsund manna samfélag og maður hugsar bara svo oft hvernig stendur á því að kerfið er orðið svona þungt og það eru svo margir að velkja hlutunum fram og til baka í þessu kerfi.“