Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vestfjarða um að hafna kröfu manns um að sviptingu lögmannsréttinda hans verði aflétt. Lögmaðurinn fyrrverandi sem í hlut á er Atli Helgason en hann var árið 2001 dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að verða Einari Erni Birgissyni að bana og var jafnframt sviptur leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hann hefur ítrekað reynt að fá réttindin aftur en án árangurs.
Atli Helgason fær ekki lögmannsréttindi sín aftur