Sýknudómurinn var kveðinn upp þann 4. nóvember síðastliðinn en ákæruvaldið hafði farið fram á sextán ára fangelsi yfir Ntentes. Héraðsdómur klofnaði í málinu en Ntentes neitaði sök við aðalmeðferð.
Sagði hann þá Zingara hafa verið góða vini og meðal annars neytt kókaíns saman tveimur dögum áður en Zingara fannst látinn. Fyrrverandi kærasta og systir Zingara greindu frá því fyrir dómara þegar þær komu að heimili hans að Skjólbraut á Kársnesinu í Kópavogi sunnudaginn 30. nóvember 2025. Þar hafi hann legið á gólfinu, látinn.
Lögreglumenn sem komu á vettvang lýstu skelfilegri aðkomu, meðal annars að garnirnar hefðu verið komnar út úr líkama Zingara og mikið blóð hafi verið á efri hluta líkama hans auk stungusárs á höfði, á bringu og neðarlega á maga. Þá fundust blóðslettur víða um íbúðina sem reyndust vera bæði úr Ntentes og Zingara.
Í viðtali eftir að dómurinn var kveðinn upp sagði verjandi Ntentes, Ómar Örn Bjarnþórsson, að hann teldi ekki of seint fyrir lögreglu að finna þann sem varð Zingara að bana. Í niðurstöðukafla dómsins sagði meðal annars að engar beinar sannanir hafi legið fyrir um að Ntentes hafi myrt Zingara.
Krefjast þess að ákærði verði sakfelldur
Til að mynda hafi ekkert blóð úr hinum látna fundist í fötum Ntentes, skóför á vettvangi gætu hafa bent til aðkomu tveggja að andláti Zingara sem þar að auki hafi verið viðriðinn fíkniefnasölu.
Þá taldi Ómar rannsókn lögreglu á málinu hafa verið ábótavant og að hún hefði átt að ræða við fleiri menn í stað þess að einblína á umbjóðanda hans.
„Það eru lausir endar sem ég teldi eðlilegt að yrðu skoðaðir. Það er ekki of seint,“ sagði Ómar þá í viðtali við Vísi.
Embætti ríkissaksóknara hefur nú ákveðið að áfrýja sýknudómnum til Landsréttar. Mbl.is greindi fyrst frá en Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfestir í tölvupósti til fréttastofu að tekin hafi verið ákvörðun um áfrýjun.
Skrifar hún jafnframt að þess verði krafist að ákærði verði sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum er gefið að sök, sem sé manndráp.