Ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum voru viðfangsefni Kveiks í gær. Andri Þór Sturluson, formaður Fangavarðafélags Íslands, segir að fangavörðum sé ekki síður hótað eða þeir beittir ofbeldi en lögreglumönnum.
„Þetta eru sömu einstaklingar sem viðhafa svipaða hegðun úti í samfélaginu og svo þegar þeir koma inn til okkar,“ segir Andri Þór.
Dæmi séu um að gripið hafi verið til ráðstafana við heimili fangavarðar vegna hótana. „Þessi þróun hefur aukist hratt, bæði hótanir og ofbeldi og við erum ekki að stefna á góðan stað í því. Kannski fyrir tíu árum þá gerðist þetta varla, nú er þetta ítrekað og oft.“
Eftir að lögreglan var búin rafbyssum hefur slysum og meiðslum á lögreglumönnum fækkað umtalsvert. Fangaverðir hafa engin slík valdbeitingartæki.
„Við höfum verið stórkostlega eftir á og fangelsið verið vanrækt varðandi þjálfun og búnað,“ segir Andri.
„Maður hefði haldið að ef einhver er það hættulegur að það krefst einhverra úrræða, hvort sem það eru rafvopn eða einhvers konar sérþjálfaðir einstaklingar, þá ætti það sama að gilda hjá okkur en það hefur alltaf skort.“