Viðbragðsáætlun Almannavarna ríkislögreglustjóra og CERT-IS hefur verið virkjuð um verndun ómissandi upplýsingainnviða. Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í tilkynningu segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum gagnvart innviðum og upplýsingakerfum.
Í þessu felst að vöktun og samráð verði aukið milli Almannavarna, CERT-IS og þeirra sem reka ómissandi upplýsingainnviði. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að yfirfara eigin varnir og hættumat og yfirfara aðgangsstýringar og þau kerfi sem opin eru út á internetið, skýjaþjónustu og tengingar við þriðja aðila.
„Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta séu í samræmi við þessa þróun. Mikilvægt er að aðilar tilkynni grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, cert@cert.is eða í gegnum hnapp á cert.is.“
Nánari upplýsingar um netógnir vegna gervigreindar má finna hér: https://cert.is/frettasafn/auknar-netognir-vegna-sjalfvirkra-arasa-med-gervigreind/