Auður Ronja Auðunsdóttir söng „Go With The Flow“ með hljómsveit fyrir tæpum tuttugu árum. Nú hefur hafnfirska söngkonan gefið lagið út, í algjörlega nýjum búning, undir listamannsnafninu Ronja í samstarfi við Bjarka Hallbergsson. Í þeirra útgáfu færist rokkið yfir á dansgólfið.
„Ég man ekki nákvæmlega hvar eða hvenær ég heyrði lagið fyrst, en það hefur fylgt mér lengi og er orðið eins og hluti af mér,“ segir Ronja í samtali við Nútímann.
Uppáhaldslínan hennar úr laginu fjallar um að finna eitthvað sem er þess virði að deyja fyrir og gerir lífið um leið fallegt.
„I want something good to die for, to make it beautiful to live.“
Ronja segir vel hægt að lesa textann sem sögu um ástarsambönd en fyrir henni nái merkingin dýpra. Henni þyki einmitt fallegt við tónlist hvað sama lagið geti haft ólíka merkingu eftir því hver hlustar og hvar viðkomandi er staddur í lífinu.
Úr rokkheiminum í elektrógeiminn
„Mig langaði að strá smá glimmeri yfir lagið, taka það úr rokkheiminum og ferðast með það inn í elektrógeiminn. Hver segir að rokk og elektró eigi ekki heima á sömu vetrarbraut?“
Ronja ólst upp á heimili þar sem tónlist ómaði frá morgni til kvölds. Þar var plötuspilari, stórar stereógræjur og „allt í botni“, eins og hún orðar það. Tónlistarsmekkur hennar nær að eigin sögn yfir nánast allan skalann.
„Mér finnst eitthvað ótrúlega spennandi og sexy við það að blanda saman ólíkum tónlistarheimum.“

Bjarki sá um útsetningu og upptökur. Ronja lýsir honum sem fagmanni fram í fingurgóma sem búi yfir mikilli sköpunargáfu. Sjálf segist hún geta verið ansi þver í sköpunarferlinu og eiga það til að flækja hlutina þegar fullkomnunaráráttan tekur yfir.
„Bjarki var einstaklega laginn við að leiðbeina mér og stoppa mig af á sinn skemmtilega hátt þegar ég var farin að flækja hlutina um of. Það er virkilega nærandi að vera í kringum slíkt fólk.“
Hún er stolt af því sem þau sköpuðu saman. Henni finnst þeim hafa tekist að vanda til verka og bera virðingu fyrir upprunalega laginu um leið og þau gáfu því nýjan búning og sinn eigin karakter.
Tekur myrkrið og glimmerið með í næsta lag
Aðspurð hvers vegna hún gefi lagið út núna segir Ronja að tímasetningin hafi ekki verið ákveðin fyrirfram.
„Af hverju núna? Þetta bara gerðist. Það var ekkert fyrirfram ákveðið en ég veit að ég mun gera þetta af heilum hug og er meira en tilbúin í þennan dans. Ég held einmitt að þetta sé akkúrat rétti tíminn.“
Hún hefur aðeins kynnt smáskífuna lítillega á Facebook og Instagram en segir viðbrögðin hafa verið mjög góð. Henni þyki vænt um að fólk gefi sér tíma til að hlusta og hún sé innilega þakklát fyrir að það kunni að meta það sem þau Bjarki eru að skapa.
Stefnan er að gefa út frumsamið lag í janúar með texta eftir Ronju og útsetningu Bjarka. Hvernig það hljómar segist hún hvorki vita sjálf né Bjarki. Óvissan sé hluti af því sem geri vinnuna spennandi. Þau verði þó áfram á sömu vetrarbraut.
„Ég tek myrkrið og glimmerið með mér í næsta lag. Þannig líður mér best.“
Ronja segist vilja halda frelsinu til að skapa eftir því sem hún finnur fyrir hverju sinni, án þess að festa sig í ákveðinni tónlistarstefnu.
„Allavega veit ég ekkert hvert ég er að fara og mér finnst ákveðin fegurð í því.“
Hlustaðu á „Go With The Flow“ með Ronju á Spotify.