Í heildina voru fimm tonn af blýasíði sprengd í loft upp en AP-fréttaveitan segir að það séu allar birgðir Bandaríkjanna af þessu efni. Það er notað við sprengjugerð og þá sérstaklega í hvellhettur og sprengikveikjur.
Efnið var orðið svo gamalt að það var farið að kristallast. Við slíkar aðstæður getur það sprungið við núning og í kulda.
Margir íbúar óttuðust að sprengingarnar tvær sem notaðar voru til að eyða efninu gætu leitt til hættulegrar mengunar þar sem blýryk myndi berast út í loftið. Starfsmenn Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna vöktuðu andrúmsloftið á svæðinu eftir sprenginguna í dag og segja að ekkert blý hafi greinst um hálftíma eftir sprenginguna.
Blaðamaður AP sem var á vettvangi segir að þó nokkrir íbúar hafi fylgst með sprengingunum og hafi svo gantast með hve litlar þær voru. Margir virtust þeirrar skoðunar að úlfaldi hefði verið gerður úr mýflugu í aðdraganda sprenginganna.
Sérfræðingar hersins höfðu undirbúið sprengingarnar nokkuð. Búið var að koma fyrir 68 tunnum af blýasíði í tveimur byrgjum. Þá var steypa sett inn í byrgin og sandi staflað ofan á þau áður en þau voru sprengd. Þar að auki var búið að setja froðu og gel yfir svæðið sem átti að fanga blýryk sem hefði getað ratað út í andrúmsloftið.