Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri, segist að jafnaði hafa farið annað hvert ár í jarðarför ungs manns úr hópi fyrrverandi nemenda sinna síðastliðin 20 ár.Hann kallar eftir því að vandi ungra karla í íslensku samfélagi fái meiri athygli. Jón Pétur gerði málið að umtalsefni undir dagskrárliðnum störf þingsins á Alþingi í dag og rifjaði upp erfiðar stundir þegar hann hefur þurft að kveðja fyrrverandi nemendur sína.
Jón Pétur með sterk skilaboð: „Ég vil ekki mæta í fleiri jarðarfarir ungra manna“