Þessa daganna eru flestir fjölmiðlar hér á landi uppteknir við að segja neikvæðar fréttir af efnahagslífi og atvinnustarfsemi landsmanna. Svo virðist sem í gangi sé skipuleg aðför að ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum sem gengur út að sverta allar fréttir af atvinnulífinu og reyna að koma því inn í vitund landsmanna að hér séu vondar horfur fram undan, og nánast allt svart, þótt fyrir liggi að verðbólga sé farin að lækka og muni lækka hratt í byrjun komandi árs með vaxtalækkun í kjölfarið. Þetta er innan seilingar.
Orðið á götunni: Frábær afkoma í sjávarútvegi – glæsilegt uppgjör Brims en fjölmiðlar segja fátt um það