Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, er ekki á meðal þeirra sem sækjast eftir því að verða næsti forstjóri Landsvirkjunar. Viðskiptablaðið greindi frá því í gær að val stjórnar Landsvirkjunar stæði nú á milli fjögurra umsækjenda og var Birna Ósk sögð þeirra á meðal. Viðskiptablaðið hefur nú dregið það til baka. Fyrirvara hefur verið bætt við frétt RÚV sem byggð var á frétt Viðskiptablaðsins.
Hin þrjú sem nefnd voru í frétt Viðskiptablaðsins voru Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Kristín Linda Árnadóttir, starfandi forstjóri Landsvirkjunar, og Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun.