„Þau eru rannsökuð fullkomlega“ – Viðtal Kveiks við varahéraðssaksóknara í heild

„Þau eru rannsökuð fullkomlega“ – Viðtal Kveiks við varahéraðssaksóknara í heild

„Þau eru rannsökuð fullkomlega“ – Viðtal Kveiks við varahéraðssaksóknara í heild

„Það er mjög leiðinlegt að heyra þessar óánægjuraddir og vont að lögreglumenn sem leita til okkar með sín mál upplifi það að við séum ekki að sinna þeim,“ sagði Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í viðtali við Kveik.

Viðtalið er birt hér í heild sinni. Í því svarar Karl Ingi fyrir gagnrýni lögreglumanna á embætti héraðssaksóknara, sem fjallað var um í nýjasta þætti Kveiks.

Þar kom meðal annars fram að 130 lögreglumenn standa að baki kvörtun til Nefndar um eftirlit með lögreglu (NEL) þar sem gerðar eru athugasemdir við rannsóknir og afgreiðslu hátt í 30 mála þar sem lögreglumenn hafa kært ofbeldi eða hótanir sem þeir urðu fyrir við störf eða í tengslum við störf sín.

Karl Ingi vísar í viðtalinu til þess að það sem af er þessu ári hafi embættið gefið út níutíu ákærur í málum sem varða ofbeldi eða hótanir gegn lögreglumönnum. Eitt hundrað og þrjátíu mál hafi verið afgreidd á þessu ári.

„Þannig að málin eru að fá málalok,“ segir Karl Ingi. „Þannig að ég er ekki sammála því að við séum ekki að sinna þessum málum.“

Vill bíða eftir NEL

Afgreiðsla málanna og það hvort þau fái málalok er aftur á móti ekki það sem helst virðist sitja í lögreglumönnum. Rannsóknir og framkvæmd þeirra eru rauður þráður í gagnrýni kvörtunar lögreglumannanna til NEL í svokölluðu bílakjallaramáli. Þar eru bæði rannsóknirnar, málalok og ekki síður vinnubrögð harðlega gagnrýnd.

„Ég er nú bara alls ekki sammála því. Við fengum þetta erindi frá nefndinni og það er búið að svara því og nú bíðum við niðurstöðu. Og ég held að við ættum að sjá hvað kemur út úr því áður en við förum að úttala okkur eitthvað um, um þessar rannsóknir.“

Karl Ingi segir að í sjálfu sér séu rannsóknir á þessum tilteknu brotum ekki flóknar, eins og hann orðar það. Málin komi frá lögregluembættunum og ef búið er að handtaka þann grunaða sé búið að yfirheyra, viðkomandi lögreglumaður skrifi svo skýrslu um atvikið og þannig komi það til héraðssaksóknaraembættisins.

„Þannig að sú rannsókn sem fer fram hjá embætti héraðssaksóknara lýtur fyrst og fremst að því að afla myndefnis úr búkmyndavélum, læknisvottorða og þess háttar. Þannig að, nei, ég er ekki sammála því að þessi mál séu illa rannsökuð, alls ekki,“ segir Karl Ingi.

Minntur á að í úrskurði ríkissaksóknara í bílakjallaramálinu, svokallaða, sé einmitt sett út að þar hafi myndavélagagna ekki verið aflað, símum meintra höfuðpaura verið skilað órannsökuðum og símtalaskrám ekki fylgt eftir með nýjum yfirheyrslum, sagðist Karl Ingi ekki vilja ræða einstök mál en kvaðst þó kannast við gagnrýnina.

„En eins og ég segi, ég ætla ekki að tjá mig um það. Það er í gangi og það var lagt fyrir okkur að kanna hvort það væru til myndbandsupptökur þarna úr þessum bílakjallara og það verður gert.“

Ekkert kvartað

Karl Ingi sagði að gagnrýni lögreglumannanna kæmi honum enn meira á óvart í ljósi þess hversu sjaldan niðurfellingar á málum séu kærðar til ríkissaksóknara. Eins sagði hann að það hafi ekki verið gerðar athugasemdir við verklag eða annað í þessum rannsóknum á fundum embættisins og ríkissaksóknara. Þeir væru haldnir tvisvar á ári enda væri það hlutverk ríkissaksóknaraembættisins að hafa eftirlit með þessum rannsóknum Héraðssaksóknara.

„Og ég kannast ekki við að það hafi komið einhverjar athugasemdir varðandi verklag eða ákvarðanir svona almennt. Auðvitað eru einstaka mál sem hefði mátt gera betur og það eru gerðar athugasemdir við það en heilt yfir þá er þetta verklag sem við ástundum, það hafa ekki verið gerðar neinar athugasemdir við það.“

Engin lína færð

Í viðtölum Kveiks og samtölum við lögreglumenn hefur oft verið nefnt að þeir óttist að þeir eða aðrir fari að hugsa sig tvisvar um áður en þeir hafi afskipti af tilteknum afbrotamönnum. Ástæðan sé sú að þeir hafi núna í allavega þrígang horft upp á hvernig kollegar þeirra hafa orðið fyrir hefndaraðgerðum án þess að þau mál hafi sjáanlegar afleiðingar.

„Jú, það er vissulega, vissulega áhyggjuefni en ef við skoðum tölfræðina þá sjáum við að það hefur orðið veruleg fækkun á þessum málum á þessu ári, 2026 samanborið við árin á undan,“ sagði Karl Ingi.

En er það ekki vegna þess að lögreglumenn einmitt, og við höfum sjálfir orðið vitni að því, segjast einhvern veginn hálfpartinn vera búnir að missa trú á að það sé eitthvað gert í þessum málum?

„Ég bara efast um það. Ég efast algjörlega um það,“ sagði Karl Ingi. Strangar sönnunarkröfur séu gerðar til ákæruvaldsins og staðhæfir Karl að í málunum sem vísað hafi verið til hafi farið fram ítarlegar lögreglurannsóknir.

„Það var mat embættisins að sönnunargögnin voru þannig að það var ekki unnt að sýna fram á að þessi afbrot sem þarna voru framin tengdust lögreglumönnunum. Við höfðum ekki sönnunargögn.“

Genguð þið nógu langt í að afla þeirra?

„Ég tel svo vera, já, og erum við ekki að færa neina línu í þessu máli. Við höfum ekki, ekki heimild eða vald til að færa einhverja línu í þegar um afbrot er að ræða. Þetta snýst alltaf um sönnun. Við verðum að geta sannað að þetta tengist störfum lögreglu, þessi brot sem eru framin.“

Þarf þá ekki að rannsaka brotin almennilega?

„Ég er að segja það, þau eru rannsökuð fullkomlega.“

Heldurðu að það standist alveg skoðun að þetta hafi verið, þetta hafi verið fullrannsökuð brot?

„Ég tel svo vera, já.“

Segir allt hafa verið gert

Í Kveik var fjallað um tvö áþekk mál sem komu upp með fjögurra mánaða millibili á síðari hluta árs 2023. Í fyrra málinu var kveikt í bíl lögreglukonu utan við heimili hennar og fjölskyldu hennar. Í því seinna voru skemmdarverk unnin á bíl við heimili þáverandi yfirmanns hennar, Gríms Grímssonar. Í ljós hefur komið að í báðum þessum málum höfðu þeir, sem ýmist voru grunaðir um eða síðar dæmdir fyrir skemmdarverkin, verið í samskiptum við sama þekkta afbrotamanninn.

Sá hafði einnig sett sig í samband við lögreglukonuna á samfélagsmiðlum, auk þess sem hún hafði fyrr á því sama ári fengið upplýsingar um það að henni stæði mögulega ógn af manninum. Þrátt fyrir að þessar upplýsingar kæmu fram í báðum þessum rannsóknum var umræddur afbrotamaður aldrei yfirheyrður, hvorki í fyrra málinu né því seinna. Þetta gagnrýndu bæði eiginmaður lögreglukonunnar og Grímur Grímsson harðlega í viðtali í Kveik.

Karl Ingi var spurður út í það hvort hægt væri að tala um að mál væru fullrannsökuð þegar fyrir lægju upplýsingar sem virtust bendla sama aðila við gerendur í tveimur aðskildum málum, en ekki hefði einu sinni verið talað við hann?

„Við verðum að hafa eitthvað í höndunum,“ sagði Karl Ingi sem sagðist geta fullyrt að ef böndin beindust að tilteknum aðilum við rannsókn mála færi lögregla á eftir þeim vísbendingum.

En það er ekki að sjá í þessu samt?

„Ég er bara ekki sammála því,“ sagði Karl Ingi.

Þröskuldurinn á Akureyri

Í viðtalinu tæpir varahéraðssaksóknari einnig á því háa hlutfalli mála sem felld eru niður í þessum málaflokki, brotum gegn lögreglu. Um og vel yfir helmingur brota fer aldrei fyrir dóm, sem Karl Ingi fellst á að sé of hátt hlutfall. Hann sagði að mál sem kærð eru til embættisins séu oft ekki í samræmi við það sem hann sagði dómafordæmi í slíkum málum.

Það var á honum að heyra að hann teldi að of mikið af málum bærust og þá umfram efni. Þeim hefði fjölgað mikið á nokkurra ára tímabili. Munur væri auk þess á því eftir embættum hversu mörg mál væru kærð til héraðssaksóknara og einnig hversu hátt hlutfall þeirra endaði á því að vera felld niður.

Í tölum frá héraðssaksóknara yfir mál sem bárust á árunum 2022 og fram á þetta ár kemur fram að fjöldi mála í heild hafi verið 750 á þessu tímabili. Flestar bárust þær frá embættinu á höfuðborgarsvæðinu sem er það langfjölmennasta af níu embættum landsins. Næstflest málin eða 20% allra, komu hins vegar frá embættinu á Norðurlandi eystra, eða 150 talsins. Það er hlutfallslega langhæst. Kærur frá embættunum á Suðurlandi og Suðurnesjum, sem eru langtum fjölmennari embætti, voru samanlagt færri en frá embættinu að norðan.

Norðurland eystra sker sig líka úr þegar skoðuð eru afdrif kæra sem þaðan berast. Rúmlega helmingur allra mála þaðan endar með niðurfellingu. Hlutfallið er mun hærra en hjá flestum öðrum embættum. Spurður hvað kunni að skýra þennan mikla mun sagði Karl Ingi:

„Ég í sjálfu sér kann enga skýringu á því, en væntanlega er þröskuldurinn eitthvað lægri þar.“

Spurður hvort sú staðreynd að fleiri mál séu felld niður þaðan en annars staðar benti til þess að verið væri að senda þangað of mörg mál eða umfram efni sagði hann það mögulega geta verið tilfellið. Hvort það kæmi niður á rannsókn annarra mála, sagði Karl:

„Ja, það er náttúrulega eftir því sem málunum fjölgar að þeim mun meiri tími fer í rannsóknir og, og á meðan sitja þá kannski önnur mál til hliðar. Það segir sig sjálft.“

#eru #fullkomlega #rannsökuð #viðtal #þau

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-25-thau-eru-rannsokud-fullkomlega-vidtal-kveiks-vid-varaheradssaksoknara-i-heild-493758

📰 Aðrar fréttir

Mjög alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandavegi - Mikill viðbúnaður
📅 26.11.2026 👁️ 1
Mjög alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandavegi - Mikill viðbúnaður
Krýsuvíkurvegi var lokað um klukkan 17 í dag, milli Suðurstandarvegar og Leiðarendavegar, vegna umferðarslyss á Suðurstrandarvegi. Einnig er Suðurstra...
Lögmaður segir skjólstæðing sinn hafa verið kærðan fyrir að senda lögreglumanni vinabeiðni á Facebook
📅 26.11.2026 👁️ 1
Lögmaður segir skjólstæðing sinn hafa verið kærðan fyrir að senda lögreglumanni vinabeiðni á Facebook
Gunnar Gíslason lögmaður segir að lögreglan á Norðurlandi eystra hafi stofnað mál gegn skjólstæðingi hans fyrir að senda lögreglumanni vinabeiðnir á F...
Lætur tæknirisana ekki þagga niður í sér þrátt fyrir líflátshótanir
📅 26.11.2026 👁️ 1
Lætur tæknirisana ekki þagga niður í sér þrátt fyrir líflátshótanir
Julie Inman Grant, sérstakur netöryggisfulltrúi Ástralíu, segir að ástæðan fyrir að öryggi notenda á samfélagsmiðlum sé ekki tryggt sé ekki vegna skor...
Systur­skip Jökuls sökk fyrir rúmum tuttugu árum - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 1
Systur­skip Jökuls sökk fyrir rúmum tuttugu árum - Vísir
Atburðarásin þegar Jökull sökk austan við land í gær var hröð. Skipstjórinn Kristinn Hrannar Hjaltason tilkynnti um brotna lúgu og leka sem kominn vær...
Björgunarafrek Landhelgisgæslunnar vekur athygli erlendis – Jökull sökk á aðeins 19 mínútum
📅 26.11.2026 👁️ 1
Björgunarafrek Landhelgisgæslunnar vekur athygli erlendis – Jökull sökk á aðeins 19 mínútum
Björgunarafrek Landhelgisgæslunnar vekur athygli erlendis – Jökull sökk á aðeins 19 mínútum Fréttin26. nóvember 2026Erlent, InnlentLeave a Comment Sjó...
„Þið gáfuð mér bróður minn aftur“ - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 1
„Þið gáfuð mér bróður minn aftur“ - Vísir
Þrír fórust og 14 var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar fiskiskipið Jökull ÞH sökk um 60 sjómílur austur af landinu síðdegis í gær.  A...
Aðeins ein tilkynning um skriðu þrátt fyrir úrhellisrigningu eystra
📅 26.11.2026 👁️ 1
Aðeins ein tilkynning um skriðu þrátt fyrir úrhellisrigningu eystra
Þrátt fyrir að mikið hafi rignt á Austurlandi hefur Veðurstofu ekki borist nema ein tilkynning um skriðuföll. Aurskriða féll á þjóðveginn um Fagradal ...
Huntingdon train knifeman guilty of trying to murder 14 people
📅 26.11.2026 👁️ 1
Huntingdon train knifeman guilty of trying to murder 14 people
Anthony Williams, 33, is convicted of 10 attacks on a train and four in Peterborough and London.
Hætta á að flæði að Hring­veginum við Vík - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 2
Hætta á að flæði að Hring­veginum við Vík - Vísir
Suðlæg alda sunnan af landinu er há, eða 8-10 m, og nokkuð þung með 15 sekúndna sveiflutíma. Að auki er stórstreymt og nokkur loftþrýstingsáhlaðandi, ...
Verulegt áhyggjuefni hvernig staðið hefur verið að ráðningum hjá lögreglunni - „Má aldrei verða viðtekin venja“
📅 26.11.2026 👁️ 1
Verulegt áhyggjuefni hvernig staðið hefur verið að ráðningum hjá lögreglunni - „Má aldrei verða viðtekin venja“
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, segir verulegt áhyggjuefni hvernig staðið hafi verið að ráðningum í stjórnunarstöður hjá íslensku lögregl...
Krýsuvíkurvegi lokað vegna umferðarslyss
📅 26.11.2026 👁️ 2
Krýsuvíkurvegi lokað vegna umferðarslyss
Krýsuvíkurvegi var lokað um klukkan 17 í dag, milli Suðurstandarvegar og Leiðarendavegar, vegna umferðarslyss á Suðurstrandarvegi. Einnig er Suðurstra...
Umferðarslys á Suðurstrandarvegi
📅 26.11.2026 👁️ 2
Umferðarslys á Suðurstrandarvegi
Suðurstrandarvegur er lokaður milli Þorlákshafnar og Grindavíkur vegna umferðarslyss. Krýsuvíkurvegur er einnig lokaður milli Suðurstrandarvegar og Le...
Mjög alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi
📅 26.11.2026 👁️ 1
Mjög alvarlegt umferðarslys á Suðurstrandarvegi
Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Suðurstrandarvegi fyrir rétt fyrir klukkan fimm.Suðurstrandarvegur er lokaður milli Þorlákshafnar og Grindavíkur ve...
Erfitt að slíta tengingu og fljúga burt - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 2
Erfitt að slíta tengingu og fljúga burt - Vísir
„Við erum nokkuð brött, en samt lúin,“ segir Jens, flugsjtóri hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við fjölmiðla í dag, spurður hver staðan sé á þyrluáhö...
Krýsu­víkur­vegi lokað vegna umferðarslyss - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 2
Krýsu­víkur­vegi lokað vegna umferðarslyss - Vísir
„[Krýsuvíkurvegur] er lokaður milli Suðurstrandarvegar og Leiðarendavegar vegna umferðarslyss á Suðurstrandarvegi. Einnig er Suðurstrandarvegur lokaðu...
Vegurinn um Fagradal lokaður vegna aurskriðu
📅 26.11.2026 👁️ 2
Vegurinn um Fagradal lokaður vegna aurskriðu
Vegurinn um Fagradal er lokaður eftir að aurskriða féll yfir hann laust fyrir klukkan fimm. Á umferðin.is segir að unnið sé að opnun.
Huw Edwards gives first interviews since child abuse image conviction
📅 26.11.2026 👁️ 2
Huw Edwards gives first interviews since child abuse image conviction
The disgraced ex-BBC News presenter will appear in a TV documentary, newspaper interview and podcast.
Flug­maður TF-GRÓ lýsir björgunarað­gerðunum - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 3
Flug­maður TF-GRÓ lýsir björgunarað­gerðunum - Vísir
Áhöfnin á Jökli PH sem sökk um hundrað kílómetra austur af Glettingi síðdegis í gær var skipuð sextán karlmönnum og einni konu. Þrír létust og fjórtán...
Ó­trú­legt lán að allt hafi gengið upp - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 1
Ó­trú­legt lán að allt hafi gengið upp - Vísir
„Ég og mín áhöfn mættum á Egilsstaði eftir ýmsum leiðum og höfðum ekki þyrlu til að gera nokkurn skapaðan hlut. Það var ákveðið hjá Landhelgisgæslunni...
Útskýrir hvers vegna Jökull sökk - Hvarf í sæ 19 mínútum eftir neyðarkall
📅 26.11.2026 👁️ 2
Útskýrir hvers vegna Jökull sökk - Hvarf í sæ 19 mínútum eftir neyðarkall
Skipið Jökull ÞH 299 fórst út af Austfjörðum í gærkvöld. Fjórtán skipverjum var bjargað á lífi en þrír létust. Samkvæmt frétt mbl.is var það brotin ne...
Fylgdi í fótspor þjóðhetjunnar í björgunarleiðangri gærkvöldsins
📅 26.11.2026 👁️ 1
Fylgdi í fótspor þjóðhetjunnar í björgunarleiðangri gærkvöldsins
Fátt hefur verið fjallað um meira í dag en skipsskaðann sem varð 60 sjómílum austur af Glettingi þegar fiskiskipið Jökull sökk með þeim afleiðingum að...
Lilja Rannveig baunar á þingmann Miðflokksins: „Snorri, þetta var klaufalegt hjá þér“
📅 26.11.2026 👁️ 1
Lilja Rannveig baunar á þingmann Miðflokksins: „Snorri, þetta var klaufalegt hjá þér“
„Snorri, þetta var klaufalegt hjá þér,“ segir Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, sem baunar á Snorra Másson, ...
Vilja hækka stakan sundmiða um 600 krónur - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 1
Vilja hækka stakan sundmiða um 600 krónur - Vísir
Fyrir rúmum þremur vikum samþykkti borgarstjórn að hækka staka miðann um 40 krónur um áramótin. Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar...
Viðbragðsáætlun almannavarna enn í gildi vegna umfangsmikilla árása
📅 26.11.2026 👁️ 1
Viðbragðsáætlun almannavarna enn í gildi vegna umfangsmikilla árása
Engin ástæða er fyrir almenning að bregðast sérstaklega við umfangsmikilli tölvuárás sem gerð var á upplýsingainnviði í gær. Almenningur verði helst f...
Barna­fjöl­skyldum muni fækka hratt - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 2
Barna­fjöl­skyldum muni fækka hratt - Vísir
Þetta kemur fram í nýbirtri tilraunatölfræði frá Hagstofu Íslands þar sem spáð er fyrir um fjölda og hlutfall einstakling eftir fjölskyldugerð. Fjölsk...
Enginn kunnur veik­leiki á Jökli - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 1
Enginn kunnur veik­leiki á Jökli - Vísir
Aðeins tólf mínútur liðu frá því að neyðarboð um leka barst frá skipstjóranum þangað til hann tilkynnti að skipið væri á leiðinni niður og skipverjar ...
Nearly 100 Labour MPs including ministerial aides oppose Rosebank oil field
📅 26.11.2026 👁️ 1
Nearly 100 Labour MPs including ministerial aides oppose Rosebank oil field
Energy Secretary Miatta Fahnbulleh is due to make a decision on whether to give the go-ahead for drilling in the oil field off the north-west coast of...
How knife attack on train near Huntingdon unfolded
📅 26.11.2026 👁️ 1
How knife attack on train near Huntingdon unfolded
Video filmed by train passengers and CCTV captures the situation on board as 10 people are injured.
Freistaði þess að fá úrskurðarnefnd til að skikka lögmann til að taka mál hans að sér
📅 26.11.2026 👁️ 2
Freistaði þess að fá úrskurðarnefnd til að skikka lögmann til að taka mál hans að sér
Úrskurðarnefnd lögmanna hefur vísað frá kvörtun aðila sem taldi lögmann stéttarfélags síns hafa brugðist sér í deilu við fyrrverandi vinnuveitanda. Va...
„Fór það ekki á milli mála að lestur bóka er í sókn“ - Myndasyrpa frá Bókahátíð í Hörpu
📅 26.11.2026 👁️ 2
„Fór það ekki á milli mála að lestur bóka er í sókn“ - Myndasyrpa frá Bókahátíð í Hörpu
Árleg Bókahátíð Félags íslenskra bókaútgefenda (FIBUT) fór fram í Hörpu helgina 21.-22. Nóvember. Dagskráin var vegleg og þétt frá kl. 11-17 báða daga...
Unnusta skipstjórans á Jökli sendir þakkir til björgunarfólks: „Litla brotna hjartað mitt er með ykkur öllum“
📅 26.11.2026 👁️ 2
Unnusta skipstjórans á Jökli sendir þakkir til björgunarfólks: „Litla brotna hjartað mitt er með ykkur öllum“
Patrícia Mikulová er sambýliskona skipstjórans á Jökli ÞH299 sem fórst út af Austfjörðum í gærkvöld. Fjórtán skipverjum var bjargað á lífi en þrír lét...
Einkaviðtal DV við skipverja á Jökli -„Ég vissi að minn tími væri ekki kominn“
📅 26.11.2026 👁️ 2
Einkaviðtal DV við skipverja á Jökli -„Ég vissi að minn tími væri ekki kominn“
Pawel Samilo er einn af áhafnarmeðlimum Jökuls ÞH 299 sem sökk austan við Gletting í gærkvöldi. Hann missti tvo góða vini sína til meira en tíu ára í ...
Do gummy vitamins survive a Canary Islands summer?
📅 26.11.2026 👁️ 3
Do gummy vitamins survive a Canary Islands summer?
You open the glovebox of a hire car in Playa de las Américas after a day at the beach. The jar of gummy vitamins you bought at Gatwick has become one ...
Eiginkona skipstjórans á Jökli þakkar björgunarfólki
📅 26.11.2026 👁️ 3
Eiginkona skipstjórans á Jökli þakkar björgunarfólki
Patrícia Mikulová birti í dag færslu á ensku á Facebook þar sem hún þakkar björgunarfólki og vottar samúð sína með fjölskyldum þeirra sem fórust þegar...
Could the Huntingdon train attack have been prevented?
📅 26.11.2026 👁️ 3
Could the Huntingdon train attack have been prevented?
The Huntingdon train attacker has been found guilty of all 14 counts of attempted murder.
Mandelson kept lobby firm shares for months as US ambassador despite conflict of interest fears, documents show
📅 26.11.2026 👁️ 2
Mandelson kept lobby firm shares for months as US ambassador despite conflict of interest fears, documents show
The peer was sacked as ambassador last year over his relationship with the convicted sex offender Jeffrey Epstein.
„Ég elska þig ástin mín, við erum að sökkva“ - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 2
„Ég elska þig ástin mín, við erum að sökkva“ - Vísir
„Eftir harmleik gærkvöldsins um borð í Jökli ÞH er erfitt að finna orð yfir allt sem ég finn fyrir,“ skrifar Patrícia Mikulová í færslu á Facebook en ...
Spánverji líklega næsti bankastjóri Seðlabanka Evrópu
📅 26.11.2026 👁️ 2
Spánverji líklega næsti bankastjóri Seðlabanka Evrópu
Allt stefnir í að Spánverji taki við stöðu bankastjóra Seðlabanka Evrópu í febrúar á næsta ári. Þá lætur Christine Lagarde af störfum. Hún hefur stýrt...
Rafræn þjónustukerfi liggja enn niðri
📅 26.11.2026 👁️ 3
Rafræn þjónustukerfi liggja enn niðri
Rafræn þjónustukerfi Reykjavíkurborgar liggja enn niðri eftir alvarlega tölvuárás sem gerð var á hluta tölvukerfa borgarinnar í gær. Gripið var til rá...
Allar varnir brustu hjá Unni Ösp - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 3
Allar varnir brustu hjá Unni Ösp - Vísir
Tilefni ferðalagsins var sextugsafmæli Björns Ólafssonar, fjárfestisi og mágs Björns Thors, og var fjölmennur hópur Íslendinga með í för. Meðal ferðal...
Huntingdon knifeman told doctor psychosis drugs weren't working
📅 26.11.2026 👁️ 2
Huntingdon knifeman told doctor psychosis drugs weren't working
Now his trial has concluded over the LNER train attack, we can report Anthony Williams' long history of criminality.
Sökk eftir að lúga brotnaði - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 5
Sökk eftir að lúga brotnaði - Vísir
Skipið var sokkið innan við tuttugu mínútum eftir að Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjórinn, hafði fyrst samband við stjórnstöðina, samkvæmt tímalín...
Lúga brotnaði og skipið sökk á 19 mínútum
📅 26.11.2026 👁️ 3
Lúga brotnaði og skipið sökk á 19 mínútum
Skipstjórinn á Jökli ÞH hafði samband við Landhelgisgæsluna klukkan 17:05 í gær, sagði lúgu brotna að aftan og leka kominn að skipinu. Stjórnstöð Land...
How the Huntingdon train attack unfolded - carriage by carriage
📅 26.11.2026 👁️ 4
How the Huntingdon train attack unfolded - carriage by carriage
In five terrifying minutes, Anthony Williams stabbed passengers on a train between Peterborough and London. This is how it happened.
Three arrested after arson attack in Gran Canaria
📅 26.11.2026 👁️ 3
Three arrested after arson attack in Gran Canaria
The National Police have arrested three men aged 19 and 20 after a suspected arson attack at the Casa del Niño building in Las Palmas de Gran Canaria ...
Heims­byggðin bregst við slysinu - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 3
Heims­byggðin bregst við slysinu - Vísir
Uppslátturinn í erlendum fréttum er flestur á sama veg. Þrír látnir þegar skip sökk við Íslandsstrendur.  Norski miðillinn VG fjallaði til að mynda um...
Besti árangur ís­lenska kokkalandsliðið hingað til - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 2
Besti árangur ís­lenska kokkalandsliðið hingað til - Vísir
Íslenska kokkalandsliðið fékk gull í báðum keppnisgreinum heimsmeistaramótsins í matreiðslu í Lúxemborg. Í fyrri greininni, Restaurant of Nations, eld...
Ís­land í fjórða sæti á Heims­meistara­mótinu - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 2
Ís­land í fjórða sæti á Heims­meistara­mótinu - Vísir
Á síðustu Ólympíuleikum í matreiðslu munaði innan við einu stigi á Íslandi í þriðja sæti og sigurliðinu. Svo lítill getur munurinn verið á efstu liðun...
Beint streymi: UMFÍ og ÍSÍ kynna skýrsluna Raddir ungs fólks - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 3
Beint streymi: UMFÍ og ÍSÍ kynna skýrsluna Raddir ungs fólks - Vísir
Þetta er samstarfsverkefni UMFÍ og ÍSÍ og verða niðurstöður skýrslunnar kynntar í dag, fimmtudaginn 26. nóvember kl. 16:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laug...
Hörmulegs umferðarslyss minnst með viðburði á laugardag – „Sennilega mun ég alla ævi þurfa að glíma við þessar afleiðingar“
📅 26.11.2026 👁️ 3
Hörmulegs umferðarslyss minnst með viðburði á laugardag – „Sennilega mun ég alla ævi þurfa að glíma við þessar afleiðingar“
„Þessi árekstur hefur markað djúp spor í mínu lífi og haft mikil áhrif á lífsgæði mín og fjölskyldu minnar,“ segir Anna Linda Bjarnadóttir lögmaður se...