„Við fengum nokkra af uppáhaldslistamönnunum okkar til að fagna með okkur. Það er nú einu sinni þannig að þegar maður heldur afmælisveislu vill maður hafa skemmtilegt fólk í kringum sig,“ segir Unnsteinn Manuel Stefánsson, söngvari Retro Stefson.
„Það er mjög gaman að fá ólík atriði til þess að hita upp, en við erum lítil sena þar sem allir þekkjast. Þetta er fólk sem við þekkjum, og höfum þekkt lengi, og eru þau að gera skemmtilega hluti á heimsvísu,“ bætir bassaleikarinn Logi Pedro við.
Þeir Tumi Björnsson og Davíð Þór Katrínarson, sem skipa dúóið YungGamli x Svarti, leiddu saman hesta sína á árinu og sendu frá sér lagið „PUNGUR Á KLÚBBNUM“ sem hefur notið gríðarlegra vinsælda.
SCAM, sem samanstendur af Herdísi Stefánsdóttur og Sölku Valsdóttur. lék sína fyrstu tónleika á Iceland Airwaves í fyrra og var í kjölfarið bókuð á Hróarskeldu í Danmörku. Síðan þá hafa þær verið á miklu flakki, spilað víða erlendis og vakið verðskuldaða athygli.
Hermigervill hefur um árabil skipað sér sérstöðu í íslensku tónlistarlífi. Fáir kunna betur þá list að koma fólki í dansgírinn og með sínum einstaka rafræna hljóðheimi og ógleymanlegri sviðsframkomu er hann sannkallaður veislustjóri.