Ljóst er að stýrivextir verða átta prósent fram á næsta ár eftir að Seðlabankinn kynnti ákvörðun sína um að halda þeim óbreyttum í síðustu viku. Spáð er tiltölulega mikilli kólnun á næsta ári og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segist viss um að verðbólga fari að hjaðna. „Við erum að fara að taka hana niður,“ sagði Ásgeir að loknum fundi peningastefnunefndar.
Þá sagði hann að staðan í byggingargeiranum ylli sér áhyggjum. „Þetta er eitthvað sem við höfum talað um í þrjú ár, að það væri mögulegt offramboð í uppsiglingu,“ sagði Ásgeir. Í Vikulokunum var rætt um stöðu efnahagsmála og húsnæðismarkaðinn við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, og Pál Pálsson, fasteignasala.
„Gamli, góði, íslenski vítahringurinn“
Páll Pálsson, fasteignasali, bendir á að um 1.800 íbúðir séu til sölu í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu „sem ekki eru að seljast eða mjög hægt. Það tæki svona eitt og hálft ár til tvö ár miðað við núverandi söluhraða að selja upp þann lager. Segjum svo að vextir lækki og sá lager muni fara á kannski einu ári þá er ekki til neitt í kjölfarið á því. Þar af leiðandi hækkar verð aftur, þar af leiðandi hækkar verðbólga og svo framvegis. Aftur gamli, góði, íslenski vítahringurinn,“ segir hann.
Páll segir stefna í 7.500 til 8.000 kaupsamninga á árinu. „Það stefnir í svona 13 til 15 prósent minni sölu en meðalár síðustu svona tíu ára og virðist stefna í svipaða sölu og 2023 þegar stýrivextir fóru einmitt upp í átta prósent. Það er svona kjarninn á markaðinum,“ segir hann.
Hefðbundnar eignir seljist en það taki tíma. „Við eigum ekkert að þurfa að venjast því eins og gerðist 2021 að eignirnar hækki um margar milljónir á mánuði. Þetta er í raun og veru þroskaðra tímabil núna þó að þetta sé alls ekki fullkomið heldur en var 2021, 2022,“ segir Páll.
Á húsnæðis- og byggingarmarkaði þurfi þó að horfa til lengri tíma. „Ef að vextir lækka ekki og verðbólga ekki þá verða fjöldagjaldþrot. Það þarf engan vísindamann til að sjá það. Allir greiningaraðilar eru að spá því að það verði mikil vaxta- og verðbólgulækkun á næsta ári, menn eru að vona að það verði einhver lækkun á vöxtum í febrúar. Ég held að það verði ekki. Ég held að fyrsta lækkunin verði ekki fyrr en í maí, en þá verði hún rausnarleg. Við þurfum að hafa úthald í sex mánuði í viðbót þar til það breytist,“ segir Páll.
Mannréttindi gerð að hagstjórnartæki
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir mikilvægt að horfa lengra fram í tímann, áratugi, í húsnæðismálum, „til þess að komast út úr þessum vítahring sem Páll lýsir svo vel þar sem allt er kælt niður, byggingarfyrirtækin byrja að skella í lás og draga saman og síðan erum við með skortstöðu eftir einhver x ár. Þú byggir ekki á einni nóttu. Þetta er ekki þannig að þú getir bara sveiflað þessu til og frá,“ segir hún.
„Það er verið að nota grunnmannréttindi í lífi fólks, sem er þak yfir höfuðið, sem efnahagsstjórnunartæki. Ég held að sú stefna sé algjörlega gengin sér til húðar, að þegar að illa árar þá eigi húsnæðiskostnaðurinn þinn að rjúka upp úr öllu valdi,“ segir Halla. „Þessi hávaxtastefna sem er búin að vera hérna í fjögur ár mun ekki skila einhverjum meiri árangri í baráttunni við verðbólguna ef að ekkert annað er gert.“
Nánar var rætt við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, og Pál Pálsson, fasteignasala, í Vikulokunum.