Tölvuþrjótar nota opin gervigreindartól til að ráðast á íslenska upplýsingainnviði. . Samkvæmt heimildum RÚV eru nokkrar gervigreindarárásir í gangi þessa stundina á nokkur fyrirtæki og þjónustur á Íslandi. Við ræddum við Magna Sigurðsson, forstöðumann netöryggissveitar CERT-IS.
Almannavarnir hvetja fyrirtæki og stofnanir til að yfirfara eigin varnir og hættumat og yfirfara aðgangsstýringar og þau kerfi sem opin eru út á internetið, skýjaþjónustu og tengingar við þriðja aðila.
„Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta séu í samræmi við þessa þróun. Mikilvægt er að aðilar tilkynni grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, cert@cert.is eða í gegnum hnapp á cert.is.“
Viðbragðsáætlun Almannavarna ríkislögreglustjóra og CERT-IS hefur verið virkjuð um verndun ómissandi upplýsingainnviða.
Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í tilkynningu segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum gagnvart innviðum og upplýsingakerfum.
Í þessu felst að vöktun og samráð verði aukið milli Almannavarna, CERT-IS og þeirra sem reka ómissandi upplýsingainnviði. Í dag var gerð árás á hluta tölvukerfa Reykjavíkur og tíðindi hafa borist af fleiri árásum af sama tagi.
Velkomin í þessa fréttavakt þar sem við á fréttastofunni fylgjumst með framvindu mála.