Kemur þetta fram í tilkynningu frá borginni en þar segir einnig að sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og netöryggissveitarinnar CERT-IS vinni nú ásamt starfsfólki borgarinnar að því að greina umfang árásarinnar, tryggja öryggi kerfanna og koma þjónustu aftur í eðlilegt horf eins fljótt og kostur er.
Veistu meira um málið eða hefur þú orðið var við röskunina? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Vegna þessara ráðstafana megi gera ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga. Sum þjónustukerfi kunni að verða óaðgengileg, að öllu leyti eða að hluta, meðan unnið er að því að tryggja öryggi þeirra og virkni.
Nánari upplýsingar verði veittar eftir því sem fram vindur.
Fréttin er í vinnslu.
Veistu meira um málið eða hefur þú orðið var við röskunina? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.