Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í samtali við Vísi og jafnframt að Samhæfingarstöð almannavarna hafi verið virkjuð.
Þá fer fram samhæfing og yfirstjórn almannavarnaaðgerða með hliðsjón af almannavarnastigi og viðeigandi viðbragðsáætlun og er stöðin virkjuð þegar nauðsyn krefst.
Á vef Almannavarna segir að einnig geti viðbragðsaðili eða almannavarnanefnd óskað eftir því að Samhæfingarstöðin annist stjórn vegna tiltekinnar hættu.
Jón Þór sagði ekki unnt að gefa upp meiri upplýsingar um málið að svo stöddu en að það yrði send út tilkynning síðar í kvöld.