Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984, segir árásarmennina sem réðust á fyrirtækið í síðustu viku mjög líklega þjóðríki. Árásin hafi verið viðamikil, dýr, langvarandi og háþróuð.“
Hann segir að einhverjir hafi spekúlerað um að smærri hópar geti gert viðlíka árásir með tilkomu gervigreindarinnar, en sérfræðingar telji ólíklegt að aðrir en þjóðríki geti hafa staðið þar að baki.
Hann segir árásina óvenjulega fyrir margar sakir. Hún sé markviss og hægt sé að draga ýmsar ályktanir út frá hegðun þrjótanna í aðdraganda og kjölfar hennar. Það sé einkum þögn þeirra eftir á sem gefi vísbendingar. Oft stæri hakkarar sig af árásum sínum á svokölluðum hulduvef en í þessu tilfelli hafi ekki heyrst múkk frá árásarmönnunum.
„Við höfum fengið áhuga víða að, frá leyniþjónustum vestrænna ríkja sem hafa áhuga á því að verjast svona löguðu,“ segir Mörður.
Skilja ekki eftir sig nafnspjöld
Áður hefur verið greint frá því að talið sé að erlendir og fjársterkir aðilar hafi staðið á bak við árásina. Rannsókn bendir til þess að upphaflegt markmið hennar hafi verið að taka niður vefsíður sem styðja málstað Palestínu.
Nú eru upphafleg markmið þarna vefsíður sem tengjast málstað Palestínu. Teljið þið að þetta séu Ísraelsmenn sem standa að baki árásinni?
„Við getum ekkert fullyrt um það. Eins og ég segi þessir aðilar skilja ekki eftir sig nein nafnspjöld.“
Komust ekki í snertingu við aðra viðskiptavini
Hann segir árásarmennina hafa ráðist á vefsíðurnar og í kjölfarið brotið sér leið inn í innra kerfi 1984. Þeir virðist einkum hafa haft áhuga á bókhaldi fyrirtækisins. Eyðilegging vefsíðnanna sjö, sem voru upphafleg markmið árásarinnar, sé eini skaðinn sem árásarmennirnir hafi náð að valda viðskiptavinum 1984.
„Eftir það þá tekst þeim eiginlega ekki að gera neitt. Þeir skoða engin gögn okkar viðskiptavina sem vistuð eru, þeir komast raunverulega hvorki lönd né strönd,“ segir Mörður.
Mörður segir fyrirtækið þó eiga afrit af síðunum og munu koma þeim aftur upp um leið og það geti. Hann segist ekki vita hvaða gögn hafi verið undir hjá vefsíðunum. Almennt sé fólk þó ekki að setja viðkvæmar upplýsingar á vefsíður sínar, heldur séu þær eins konar stafræn plaköt.
Hann segir fyrirtækið vel á veg komið með að koma þjónustunni aftur af stað að fullu. Tölvupóstaþjónusta þeirra sé komin í lag og stefni að því að 95% vefsíðna viðskiptavina verði komnar upp aftur. 1984 sé afar þakklátt viðskiptavinum sínum fyrir skilninginn.