Almannavarnir og CERT-IS virkjuðu viðbragðsáætlun um verndun ómissandi upplýsingainnviða eftir netárásir, meðal annars á tölvukerfi Reykjavíkurborgar.
Þetta er í þriðja sinn sem óvissustigi er lýst yfir vegna netárása. Í fyrsta sinn var það þegar tölvuþrjótar nýttu sér veikleika í kóðasafninu log4j árið 2022. Síðast var óvissustig virkjað í kringum leiðtogafund Evrópuráðsins 2023, þegar árásir voru gerðar á vefi Stjórnarráðsins, Alþingis og Isavia.
Forstöðumaður netöryggissveitar CERT-IS segir við RÚV að nauðsynleg þjónusta hjá Reykjavíkurborg verði enn aðgengileg en eitthvað rof gæti verið á annarri þjónustu. Engin ógn sé fyrir almenning en fólk geti átt von á röskun á til dæmis mínum síðum Reykjavíkurborgar. Einhverjar vefsíður gætu legið niðri.
Fleiri en eitt atvik
Netárásin á tölvukerfi Reykjavíkurborgar er hvorki eina né fyrsta atvikið. Netárás var gerð á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í síðustu viku. Samkvæmt heimildum RÚV eru nokkrar gervigreindarárásir í gangi þessa stundina á nokkur fyrirtæki og þjónustur á Íslandi.
Magni Sigurðsson, forstöðumaður netöryggissveitar CERT-ÍS, segir að óvissustig hafi verið virkjað í ljósi aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum á Íslandi og í nágrannalöndum.
„Þetta eru fleiri en eitt atvik sem við erum að horfa til,“ segir Magni og nefnir árásina á 1984. Nokkrum mínútum eftir að almannavarnir virkjuðu óvissustig barst tilkynning frá Reykjavíkurborg um netárásina.
Magni segir of snemmt að segja til um hvaðan árásirnar koma. Óvissustigið þýðir meiri mannskap á vakt hjá CERT-ÍS og aukna vöktun. Aðspurður hvort netárásum hafi fjölgað frá því í fyrra segir Magni að tölfræðin sé nokkuð sambærileg. „En mikil aukning í alvarlegri atvikum.“
Á síðustu vikum og mánuðum hafa æ fleiri gervigreindartól orðið aðgengilegri.
„Mikið af opnum hugbúnaði sem nýtir gervigreind í að finna veikleika í kerfum. Þetta geta verið tól sem eru fyrst og fremst hugsuð fyrir varnaraðila til að finna sína veikleika en eru nýtt af árásaraðilum.“
„Við munum aðstoða alla aðila eftir bestu getu. Við getum forgangsraðað eftir alvarleikastigi,“ segir Magni.