Greint er frá þessu í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra. Áætlunin er sögð virkjuð á óvissustigi almannavarna og feli í sér aukna vöktun og samráð milli almannavarnadeildar, netöryggissveitarinnar CERT-IS og rekstraraðila upplýsingainnviða sem metnir eru ómissandi.
„Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru um leið hvattar til að yfirfara eigin varnir og hættumat, yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur, og tengingar við þriðju aðila. Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta sé í samræmi við þessa þróun,“ segir jafnframt í tilkynningu.