Þar var nefndur möguleiki á að prófa vélmenni við snjóhreinsun og hálkuvarnir á göngu- og hjólastígum og myndu vélmennin þá létta undir með starfsfólki og verktökum borgarinnar. Innleiðingin myndi hins vegar ráðast af prófunum, öryggi og mannlegu eftirliti, að því er segir í kynningunni.
Þessi nána framtíð sem var kynnt fyrir borgarfulltrúum í dag gæti verið nær en fólki grunar. Euronews greindi frá því í apríl 2025 að sjálfkeyrandi snjóruðningstæki hefðu verið tekin í notkun á Gardermoen-flugvelli við Ósló árið 2021 og að þar gætu allt að sex tæki rutt snjó samtímis. Þá hafði sænska flugvallafélagið Swedavia prófað átta slík tæki á Arlanda-flugvelli við Stokkhólm.
Gervigreind gæti hjálpað við leiðarval
Í kynningunni er lagt til að setja upp átta til tíu hitamyndavélar á höfuðborgarsvæðinu, tvo geislunarmæla og tvo til þrjá frostmæla. Með þeim búnaði mætti fylgjast betur með aðstæðum í einstökum hverfum. Gervigreind er síðan sögð geta nýtt mælingarnar til að spá fyrir um hvar hálka myndast og hjálpað snjóvaktinni að ákveða hvenær kalla eigi út mannskap og hvert eigi að senda tækin fyrst. Enn á þó eftir að velja hvaða staðir verða mældir og hver kostnaðurinn yrði.
Þá er greint frá því í kynningunni að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Vegagerðin, lögreglan, almannavarnir og Veðurstofan hafi þegar tekið upp samstarf um vetrarþjónustu. Fyrsti formlegi fundur hópsins fór fram í nóvember en markmiðið er að sömu viðmið gildi um snjóhreinsun beggja vegna sveitarfélagamarka.
Útkall kostar 26 milljónir þegar tíu til tuttugu sentímetrar falla
Borgarfulltrúarnir fengu einnig kynningu á því hvað snjóhreinsun og hálkuvarnir kosta. Hefðbundið morgun- og síðdegisútkall í Reykjavík kostar samanlagt um 8,4 milljónir króna samkvæmt tölum borgarinnar. Þegar tíu til tuttugu sentímetrar af snjó falla fer kostnaðurinn í tæpar 26 milljónir króna. Þar af fara tæpar átta milljónir króna í að hreinsa stíga og tæpar fimm milljónir króna í mokstur á húsagötum.
Reykjavíkurborg áætlaði að verja 1.258 milljónum króna til vetrarþjónustu á þessu ári. Þann 11. nóvember var kostnaðurinn kominn í um 1.100 milljónir króna samkvæmt því sem kemur fram í kynningunni, en degi síðar féll fyrsti snjór vetrarins í Reykjavík.