Lykilatriði er að gæta varkárni gagnvart gervigreind og sleppa allri fífldirfsku segir Logi Már Einarsson háskóla-, menningar- og nýsköpunarráðherra.
Hann segir viðvörunarljós blikka um allt vegna tækninnar sem þróast á ógnarhraða. Brýnt sé að ríki heims komi sér saman um leikreglur.
Gervigreind hefur þróast á ógnarhraða. Logi segir að nýta eigi hana til góðs en vera á varðbergi gagnvart hagsmunum á borð við persónuvernd og lýðræði. Kollegar hans ræði iðulega um gervigreind og viðbrögð við henni á fundum erlendis.
Runólfur segir að ekki sé talin ástæða til þess að óttast um öryggi almennings á þessu stigi.
„En ef einhverjar slíkar vísbendingar berast okkur eða tilkynningar þá munum við tilkynna það alveg um leið.“
„Við teljum mjög mikilvægt að öll þau sem eru að vinna við þessi mikilvægu upplýsingakerfi okkar, sama í hvaða stofnunum það er, að þau séu meðvituð um það að það er verið að nota þetta gervigreindartól í netárásum af sífellt meiri þunga,“ segir Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna.
Runólfur segir óvissustig hafa verið virkjað. Viðbragðsáætlunin snúi að ómissandi upplýsingainnviðum.
Tilkynningar um netárásir hafa borist frá fleirum en Reykjavíkurborg í dag. Runólfur Þórhallsson sviðstjóri almannavarnadeildar segir ákvörðun hafa verið tekna um að virkja óvissustig í kjölfar þess.
Boðað hefur verið til fundar fulltrúa Reykjavíkurborgar og netöryggissveitarinnar CERT-IS klukkan hálf ellefu í kvöld vegna netárásar sem gerð var á hluta tölvukerfa borgarinnar fyrr í dag.
Gera má ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga eftir árásina. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að gripið hafi verið til öryggisráðstafana til að vernda kerfi og gögn umsvifalaust eftir að árásarinnar varð vart.
Ákveðið var að taka fjölda rafrænna þjónustukerfa tímabundið úr sambandi. Sum þjónustukerfi kunna að verða óaðgengileg að hluta eða öllu leyti meðan sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og CERT-IS tryggja öryggi þeirra og virkni.
Reykjavíkurborg varð í dag fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Fjöldi rafrænna þjónustukerfa hefur verið tekinn úr sambandi tímabundið.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var brotist inn í gegnum Microsoft Azure. Netárásaraðilar hafi komist yfir einhver lykilorð og hafi komist inn í gagnagrunn. Leiða megi líkur að því að talsvert af gögnum sé undir.
Komist hafi upp um árásina í hádeginu en ekki liggi fyrir hve lengi árásaraðilarnir hafi náð að athafna sig. Grunur leiki á að árásin komi að utan en ekki í gegnum íslenska netþjóna.
Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984, segir mjög líklegt að þjóðríki hafi gert netárásina á fyrirtækið í síðustu viku mjög líklega þjóðríki. Það sé mat sérfræðinga fremur en að smærri hópar hafi verið á ferð. Atlagan hafi verið viðamikil, dýr, langvarandi og háþróuð.
Atlagan hafi verið óvenjuleg fyrir margar sakir. Hún sé markviss og hægt sé að draga ýmsar ályktanir út frá hegðun þrjótanna í aðdraganda og kjölfar hennar. Þögn þeirra eftir á gefi vísbendingar enda stæri hakkarar sig oft af árásum sínum á svokölluðum hulduvef en í þessu tilfelli hafi ekki heyrst múkk frá árásarmönnunum.
Tölvuþrjótar nota opin gervigreindartól til að ráðast á íslenska upplýsingainnviði. . Samkvæmt heimildum RÚV eru nokkrar gervigreindarárásir í gangi þessa stundina á nokkur fyrirtæki og þjónustur á Íslandi. Við ræddum við Magna Sigurðsson, forstöðumann netöryggissveitar CERT-IS.
Almannavarnir hvetja fyrirtæki og stofnanir til að yfirfara eigin varnir og hættumat og yfirfara aðgangsstýringar og þau kerfi sem opin eru út á internetið, skýjaþjónustu og tengingar við þriðja aðila.
„Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta séu í samræmi við þessa þróun. Mikilvægt er að aðilar tilkynni grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, cert@cert.is eða í gegnum hnapp á cert.is.“
Viðbragðsáætlun Almannavarna ríkislögreglustjóra og CERT-IS hefur verið virkjuð um verndun ómissandi upplýsingainnviða.
Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í tilkynningu segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum gagnvart innviðum og upplýsingakerfum.
Í þessu felst að vöktun og samráð verði aukið milli Almannavarna, CERT-IS og þeirra sem reka ómissandi upplýsingainnviði. Í dag var gerð árás á hluta tölvukerfa Reykjavíkur og tíðindi hafa borist af fleiri árásum af sama tagi.
Velkomin í þessa fréttavakt þar sem við á fréttastofunni fylgjumst með framvindu mála.