Neyðarkall barst frá fiskiskipi austur af landinu síðdegis. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru sautján skipverjar í áhöfn skipsins, sem gerir út frá Raufarhöfn.
Veðrið á vettvangi er slæmt og ölduhæð er mikil.
Landhelgisgæslan og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar voru kallaðar út og samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð.
Þrjú björgunarskip eru á leið á vettvang, Hafbjörg frá Neskaupsstað, Sveinbjörn frá Vopnafirði og Gunnbjörg frá Raufarhöfn. Þau eru enn talsvert langt frá slysstað.
Ljóst er að aðstæður á vettvangi eru krefjandi og erfitt er að koma björgum þangað.
Fréttin verður uppfærð.