„Fjárhagsstaða bæjarins er þung og búin að vera þung undanfarin misseri, í þessu verðbólguumhverfi sem er búið að vera alltof lengi við lýði,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar. „Þetta er hreinlega að drepa bæjarsjóð Seltjarnarness, eins og aðra bæjarsjóði.“
Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar kynnir fjárhagsstöðu bæjarins á fundi í kvöld. Þar verða kynntar aðgerðir sem ráðist hefur verið í sem og fyrirhugaðar aðgerðir til að bregðast við stöðunni.
„Stefna okkar er að ná jafnvægi í rekstur á næstu tveimur árum. Við erum á góðri leið með það með 600 milljóna króna viðsnúningi í næstu fjárhagsáætlun.“
Þór segir að blönduð leið verði farin. Hagræðingar á sviðum, opnunartímar og starfsmannahagræðingar verða teknar til skoðunar. Þá verður útsvar í bænum hækkað úr 14,54% í 14,93%.