Togarinn Skinney frá Skinney Þinganesi er skammt frá slysstaðnum. Jón Þórðarson stýrimaður á Skinney segir þá eiga um 40 mínútur eftir að slysstað. Fiskiskipin Svanur og Harðbakur eiga styttra eftir og Svanur farinn að slá af segir Jón. Þá sé flugvél Landhelgisgæslunnar kominn á sömu slóðir og sveimi yfir.
Hann segir aðstæður á vettvangi ágætar, mikið hafi lægt það sé tunglbjart og hálfskýjað.
Eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, er komin á slysstað og stutt er í þyrluna TF-GRÓ. Björgunarskipið Hafbjörg frá Neskaupsstað er næst af þeim skipum sem eru á leið á staðinn.
Á Marine Traffic má sjá fiskiskip sem eru á leið að staðsetningu Jökuls ÞH 299. Það eru til dæmis togararnir Harðbakur, Skinney og Svanur. Af Marine Traffic að dæma er útlit fyrir að skipin komi á vettvang á undan björgunarskipum.
Aðstæður á slysstað eru krefjandi, veður er slæmt og ölduhæð er mikil. Erfitt er að koma björgum á staðinn. Veður á að fara versnandi með kvöldinu.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er talsverð ölduhæð á slysstað, átta til níu metrar. Hvasst, þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og úrkoma á köflum.
Sjóbjörgunarsveitir, þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út eftir að neyðarkallið barst. Þá eru þrjú björgunarskip á leið á vettvang: Hafbjörg frá Neskaupstað, Sveinbjörn frá Vopnafirði og Gunnbjörg frá Raufarhöfn.
Neyðarkall barst frá fiskiskipinu Jökli ÞH299 á sjötta tímanum. Bjargir eru á leið á staðinn. Við munum greina frá því helsta hér í lifandi fréttavakt.