Lýðskólinn á Flateyri hefur eignast sitt eigið húsnæði.
Hingað til hefur starfsemi skólans verið dreift í leiguhúsnæði um bæinn. Nú verður hún sameinuð undir einu þaki.
Þetta er níundi veturinn sem skólinn starfar. Námið er að fyrirmynd danskra lýðháskóla.
Langtímasamningur við mennta- og barnamálaráðuneyti og stuðningur og lán frá Byggðastofnun gerðu skólanum kleift að fjárfesta í húsi yst á oddanum á Flateyri.
Margrét Gauja bendir á að skólastarfið hafi þegar eflt samfélagið á Flateyri. Um fimmtán fyrrum nemendur skólans hafa sest þar að.
Í fyrra áttu 40% af börnunum í leikskólanum á Flateyri foreldra sem höfðu lært í Lýðskólanum.
Húsið hefur gegnt margvíslegu hlutverki á Flateyri áður en það komst í eigu skólans. Framundan eru framkvæmdir til að koma rýminu á efri hæðinni í gagnið.