Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna vegna fjölgunar gervigreindarárása á tölvukerfi.
Runólfur Þórhallsson sviðstjóri almannavarnadeildar áætlunina snúa að ómissandi upplýsingainnviðum.
Ekki sé talin ástæða til þess að óttast um öryggi almennings á þessu stigi.
„En ef einhverjar slíkar vísbendingar berast okkur eða tilkynningar þá munum við tilkynna það alveg um leið,“ segir Runólfur.
„Við teljum mjög mikilvægt að öll þau sem eru að vinna við þessi mikilvægu upplýsingakerfi okkar, sama í hvaða stofnunum það er, að þau séu meðvituð um það að það er verið að nota þetta gervigreindartól í netárásum af sífellt meiri þunga,“ segir Runólfur.
Hvað búist þið við að þetta ástand vari lengi?
„Já, það er góð spurning og svona miðað við það sem við heyrum frá okkar samstarfsaðilum erlendis frá þá eru talsverðar áhyggjur af notkun þessarar gervigreindar í þessum, hvernig þær eru að hafa áhrif á netárásir. Þannig að það er ástæða til þess að fylgjast alveg sérstaklega vel með og ítreka þessa hvatningu, að tilkynna allt til netöryggissveitarinnar.“