Bláa lónið er meðal þeirra fyrirtækja sem urðu fyrir netárás í dag. Þetta staðfestir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri fyrirtækisins.
Hún segir árás hafa verið gerða á bókunarsíður lónsins. Bláa lónið hafi brugðist hratt og rétt við og tilkynnt til viðeigandi eftirlitsaðila. Hún segist ekki geta svarað því hvort það hafi verið í gegnum Microsoft Azure af öryggisástæðum. Fáum gögnum hafi verið stolið.
Hún segir árásina ekki hafa haft veruleg áhrif á rekstur en hafi snert einhverja viðskiptavini. Bláa lónið hafi látið þá vita. Árásaraðilarnir hafi ekki komist yfir persónugögn.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS virkjuðu í dag viðbragðsáætlun almannavarna um verndun ómissandi upplýsingainnviða vegna fjölgunar gervigreindarárása á tölvukerfi.
Reykjavíkurborg varð í dag fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna, en tilkynningar hafa borist frá fleirum.