Í tilkynningu frá eiginkonu hans Tracey segir að hann hafi verið stórkostlegur gítarleikari, yndislegur eiginmaður og faðir og stoltur afi.
Taylor gekk til liðs við Duran Duran árið 1980, en sveitin var stofnuð í Birmingham árið 1978. Hann samdi og spilaði því með sveitinni þegar hún gaf út nokkur sinna frægustu laga, líkt og Hungry Like the Wolf, Rio, Girls on Film og The Reflex.
Taylor sagði svo skilið við sveitina árið 1986 og gekk þá til liðs við sveitina Power Station. Á ferli sínum spilaði hann einnig með tónlistarmönnum á borð við Robert Palmer, Rod Stewart og Belinda Carlisle.
Taylor greindist með blöðruhálskrabbamein árið 2018 og urðu veikindin þess valdandi að hann gat ekki verið viðstaddur þegar Duran Duran var tekin inn í frægðarhöll rokksins, Rock and Roll Hall of Fame, 2022.
Taylor lætur eftir sig eiginkonu sína, Tracey, og fjögur börn.