Landsnet annast og ber ábyrgð á meginflutningskerfi raforku hér á landi.
Samkvæmt orkuspá mun eftirspurn eftir orku halda áfram að aukast næstu árin og því fylgja áskoranir.
Til að mæta þeim ætlar fyrirtækið að forgangsraða framkvæmdum.
Haustfundur Landsnets var haldinn í dag.
Fjárfesting fyrir 10-15 milljarða á ári
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir að auk forgangsröðun framkvæmda verði hugað að uppbyggingu meginflutningskerfisins.
„Þessar stóru línur sem liggja þvert yfir landið, þær eru dýrar og dýrar framkvæmdir og hafa mikil áhrif á gjaldskrá.“
Ragna segir að með því að setja áherslu á arðbærar framkvæmdir verði reynt að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki.
Áhersla verður lögð á að tengja saman orkuvinnslu og nýtingu á vaxtarsvæðum. Þannig á að gæta að samkeppnishæfni og áfallaþoli flutningskerfisins.
Áætlaður kostnaður er 10-15 milljarðar á ári, næstu 15-20 árin.
Helstu vaxtarsvæðin eru, miðað við forsendur í dag, Bakki, Akureyri og Blönduós.
„Við erum að horfa á Suðurland, einmitt Þorlákshöfn og Vestmannaeyjar sem hafa núna stóraukna flutningsgetu og þess vegna aukin tækifæri.“
Nánast fullnýtt Suðurnesjalína 2
Spennu var hleypt á Suðurnesjalínu tvö í síðustu viku, rúmum tveimur áratugum eftir að undirbúningur að henni hófst.
Eftirspurnin þar hefur leitt til þess að línan er nánast fullnýtt, segir Ragna.
Er þá eftirspurn á þessum svæðum sem þið eruð þá að svara með auknu framboði?
„Já, það er akkurat þannig. Eins og fyrir sunnan þar er mikil eftirspurn, líka töluverð fyrir norðan. Landsnet ætlar ekki að vera flöskuhálsinn, við ætlum að tengja og tengja tækifærin eins og yfirskrift fundarins er í dag. Og tengja saman vinnslu og nýtingu.“