Það var hinn bandaríski Carey Washington Vinson sem lést en faðir hans er stjórnmálamaðurinn Joe Winson. Hann hefur nú birt tvær færslur varðandi andlát sonar síns en sú fyrri er styttri en hin og þar segir hann fjölskylduna vera harmi slegna og í áfalli.
Óska eftir aðstoð almennings
„Ég veit ekki hvernig ég á að segja þetta. Sonur okkar, Carey Washington Vinson, er látinn. Hann var í útilegu með vinum sínum við Blackwater-ána í gærkvöldi þegar byssukúla sem skotið var utan tjaldsvæðisins hæfði hann þar sem hann var í tjaldinu sínu,“ skrifar Winson í færslu á Instagram-reikningi sínum.
Lögreglan á svæðinu rannsakar nú aðdraganda andlátsins en embætti lögreglustjórans á svæðinu hefur óskað eftir aðstoð almennings við að láta vita af hvers kyns grunsamlegu athæfi á tjaldsvæðinu.
Þá hafi lögreglunni borist tilkynning um skotárás og hún hafi fundið fórnarlambið á tjaldsvæði í Holt í Flórída með skotsár á höfði. Hann hafi verið úrskurðaður látinn á vettvangi. Er þetta meðal þess sem kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins um málið en þar er einnig haft eftir lögreglustjóra í sýslunni að ökutæki hefði verið lagt hinum megin við ána þegar skotárásin átti sér stað og að vitni hefðu séð það aka á brott eftir skothríðina.
Nógu nálægt til að heyra fólk tala
„Ég þarf að leiðrétta misskilning sem þú gætir hafa fengið af skotárásinni. Þetta var ekki óheppilegt veiðislys, ekki einhver sem skaut gáleysislega út í myrkrið. Það var ekki „voðaskot“ sem drap Wash okkar,“ skrifar Winson í seinni Instagram-færslunni um málið. Þar tekur hann einnig fram að Carey hafi yfirleitt verið kallaður „Wash“.
„Eftir því sem við best vitum stóð einhver eða einhverjir á gagnstæðum árbakka og miðuðu byssu á tjaldsvæðið á bakkanum, vitandi að þar væri fólk. Þeir voru nógu nálægt til að sjá varðeldinn og heyra fólk tala,“ skrifar hann enn fremur og lýsir atvikum þannig að þeir hafi skotið hverju skotinu á fætur öðru.
„Eftir hlé, þegar skelfingu lostnir útilegugestirnir öskruðu „hættið“, skutu þeir annarri skothrinu og hlógu svo þegar þeir óku á brott,“ skrifar hann og biðlar til þeirra sem gætu veitt einhverjar upplýsingar um þá sem stóðu að verki að hafa samband.
„Ég veit að það færir okkur Wash ekki aftur, en ég myndi sofa betur vitandi að þeir geti ekki skaðað neinn annan.“