Seðlabanki Íslands hefur síðustu misseri unnið að því að efla viðnámsþrótt fjármálakerfisins á Íslandi vegna aukinnar hættu á netárásum.
„Við þurfum að horfast í augu við það að heimsmyndin er gjörbreytt og við reiðum okkur mjög mikið á alls konar tæknilausnir sem geta að sjálfsögðu annað hvort bilað eða orðið fyrir netárásum,“ sagði Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri í viðtali í sumar.
„Í dag reiðum við okkur á tvö erlend kortafyrirtæki fyrir eiginlega allar greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Við viljum gera það mögulegt að fólk geti greitt með millifærslum í búðum. Og hins vegar erum við að auka eftirlit okkar og eftirfylgni með alls konar tækniaðilum sem eru að vinna á þessu sviði.“
Magni Reynir Sigurðsson, forstjóri CERT-IS, segir ekki liggja fyrir að svo stöddu hvort tölvuárásin hafi beinst að veikleika í API-hugbúnaði Azure-þjónustu Microsoft.
„Það er ekki komið í ljós. Við erum að fara að taka fund fljótlega,“ segir Magni Reynir. „Það er eitt af mörgu sem er verið að greina.“
Hann staðfestir að það sé til skoðunar hvort tölvuárásin hafi beinst að greiðslumiðlun hérlendis.
„Við erum í þéttu samráði beint við okkar þjónustuhópa eins og staðan er núna, að miðla upplýsingum til þeirra en erum fyrst og fremst að vinna í atvikinu sjálfu og þeim tilkynningum sem eru að berast til okkar.“
Hann segir að upplýsingar séu að berast frá þjónustuþegum CERT-IS um hvort þeir hafi orðið varir við „ógnarvísa“ í sínum kerfum, það er IP-tölur og annað sem CERT-IS deilir með þjónustuþegum sem mögulegt sé að ógnaraðilar noti til innbrota.
CERT-IS vinni að því að kanna landslagið og kortleggja hvaða snertingar hafi átt sér stað.
Fjarskiptastofa býður öllum fyrirtækjum og stofnunum upp á stöðumat netöryggis vilji þau fá betri yfirsýn yfir stöðu sína og greina leiðir til úrbóta. Matið byggi á spurningum og matsviðmiðum um skipulag, stjórnun og öryggisráðstafanir.
Stöðumat netöryggis er ekki hluti af lögbundnu eftirliti Fjarskiptastofu, heldur er því ætlað að styðja fyrirtæki og stofnanir við að meta eigin netöryggisstöðu og greina tækifæri til umbóta.
Bláa lónið er meðal þeirra fyrirtækja sem urðu fyrir netárás í dag. Þetta staðfestir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri fyrirtækisins.
Hún segir árás hafa verið gerða á bókunarsíður lónsins. Bláa lónið hafi brugðist hratt og rétt við og tilkynnt til viðeigandi eftirlitsaðila. Hún segist ekki geta svarað því hvort það hafi verið í gegnum Microsoft Azure af öryggisástæðum. Fáum gögnum hafi verið stolið.
Hún segir árásina ekki hafa haft veruleg áhrif á rekstur en hafi snert einhverja viðskiptavini. Bláa lónið hafi látið þá vita. Árásaraðilarnir hafi ekki komist yfir persónugögn.
Microsoft gaf út öryggisuppfærslu á Azure 19. nóvember í kjölfar tölvuárása á norskt orkufyrirtæki. Greint var frá þessu í dag á fjölmiðlinum Cyber Security Dive sem fjallar um stafræn öryggismál.
Þar segir að árásum á Skagerak Energi hafi verið beint að veikleika í API-þjónustu Azure. API er, í einföldu máli, hugbúnaður sem er notaður til að gera samskipti á milli ólíks hugbúnaðar möguleg, til dæmis hvað varðar að skiptast á gögnum eða aðgerðum.
Microsoft gaf út öryggisuppfærslu sem á að hafa lagfært veikleikann. Öryggisráð Noregs sagði tölvuþrjót meðal annars hafa verið á höttunum eftir trúnaðargögnum og aðgangsheimildum í API-þjónustu Azure. Ekkert gefur til kynna að gögnum hafi verið stolið í árásinni á Skagerak.
Yfirvöld í Noregi hafa beðið fyrirtæki um að gera öryggisráðstafanir vegna árásarinnar.
Microsoft Azure var notað í tölvuárásinni á Reykjavíkurborg. Azure er skýjaþjónusta Microsoft, sem býður meðal annars upp á gervigreindarlausnir.
„Microsoft Azure notar marglaga öryggisvarnir fyrir gagnaver, innviði og annan rekstur. Í Azure eru einnig sérstakar varnir gegn DDoS-árásum og öðrum öryggishættum í netlaginu, til að stuðla að öryggi gagna,“ segir um þjónustuna á vef Advania.
Lykilatriði er að gæta varkárni gagnvart gervigreind og sleppa allri fífldirfsku segir Logi Már Einarsson háskóla-, menningar- og nýsköpunarráðherra.
Hann segir viðvörunarljós blikka um allt vegna tækninnar sem þróast á ógnarhraða. Brýnt sé að ríki heims komi sér saman um leikreglur.
Gervigreind hefur þróast á ógnarhraða. Logi segir að nýta eigi hana til góðs en vera á varðbergi gagnvart hagsmunum á borð við persónuvernd og lýðræði. Kollegar hans ræði iðulega um gervigreind og viðbrögð við henni á fundum erlendis.
Runólfur segir að ekki sé talin ástæða til þess að óttast um öryggi almennings á þessu stigi.
„En ef einhverjar slíkar vísbendingar berast okkur eða tilkynningar þá munum við tilkynna það alveg um leið.“
„Við teljum mjög mikilvægt að öll þau sem eru að vinna við þessi mikilvægu upplýsingakerfi okkar, sama í hvaða stofnunum það er, að þau séu meðvituð um það að það er verið að nota þetta gervigreindartól í netárásum af sífellt meiri þunga,“ segir Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna.
Runólfur segir óvissustig hafa verið virkjað. Viðbragðsáætlunin snúi að ómissandi upplýsingainnviðum.
Tilkynningar um netárásir hafa borist frá fleirum en Reykjavíkurborg í dag. Runólfur Þórhallsson sviðstjóri almannavarnadeildar segir ákvörðun hafa verið tekna um að virkja óvissustig í kjölfar þess.
Boðað hefur verið til fundar fulltrúa Reykjavíkurborgar og netöryggissveitarinnar CERT-IS klukkan hálf ellefu í kvöld vegna netárásar sem gerð var á hluta tölvukerfa borgarinnar fyrr í dag.
Gera má ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga eftir árásina. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að gripið hafi verið til öryggisráðstafana til að vernda kerfi og gögn umsvifalaust eftir að árásarinnar varð vart.
Ákveðið var að taka fjölda rafrænna þjónustukerfa tímabundið úr sambandi. Sum þjónustukerfi kunna að verða óaðgengileg að hluta eða öllu leyti meðan sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og CERT-IS tryggja öryggi þeirra og virkni.
Reykjavíkurborg varð í dag fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Fjöldi rafrænna þjónustukerfa hefur verið tekinn úr sambandi tímabundið.
Samkvæmt heimildum fréttastofu var brotist inn í gegnum Microsoft Azure. Netárásaraðilar hafi komist yfir einhver lykilorð og hafi komist inn í gagnagrunn. Leiða megi líkur að því að talsvert af gögnum sé undir.
Komist hafi upp um árásina í hádeginu en ekki liggi fyrir hve lengi árásaraðilarnir hafi náð að athafna sig. Grunur leiki á að árásin komi að utan en ekki í gegnum íslenska netþjóna.
Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984, segir mjög líklegt að þjóðríki hafi gert netárásina á fyrirtækið í síðustu viku mjög líklega þjóðríki. Það sé mat sérfræðinga fremur en að smærri hópar hafi verið á ferð. Atlagan hafi verið viðamikil, dýr, langvarandi og háþróuð.
Atlagan hafi verið óvenjuleg fyrir margar sakir. Hún sé markviss og hægt sé að draga ýmsar ályktanir út frá hegðun þrjótanna í aðdraganda og kjölfar hennar. Þögn þeirra eftir á gefi vísbendingar enda stæri hakkarar sig oft af árásum sínum á svokölluðum hulduvef en í þessu tilfelli hafi ekki heyrst múkk frá árásarmönnunum.
Tölvuþrjótar nota opin gervigreindartól til að ráðast á íslenska upplýsingainnviði. . Samkvæmt heimildum RÚV eru nokkrar gervigreindarárásir í gangi þessa stundina á nokkur fyrirtæki og þjónustur á Íslandi. Við ræddum við Magna Sigurðsson, forstöðumann netöryggissveitar CERT-IS.
Almannavarnir hvetja fyrirtæki og stofnanir til að yfirfara eigin varnir og hættumat og yfirfara aðgangsstýringar og þau kerfi sem opin eru út á internetið, skýjaþjónustu og tengingar við þriðja aðila.
„Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta séu í samræmi við þessa þróun. Mikilvægt er að aðilar tilkynni grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, cert@cert.is eða í gegnum hnapp á cert.is.“
Viðbragðsáætlun Almannavarna ríkislögreglustjóra og CERT-IS hefur verið virkjuð um verndun ómissandi upplýsingainnviða.
Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í tilkynningu segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum gagnvart innviðum og upplýsingakerfum.
Í þessu felst að vöktun og samráð verði aukið milli Almannavarna, CERT-IS og þeirra sem reka ómissandi upplýsingainnviði. Í dag var gerð árás á hluta tölvukerfa Reykjavíkur og tíðindi hafa borist af fleiri árásum af sama tagi.
Velkomin í þessa fréttavakt þar sem við á fréttastofunni fylgjumst með framvindu mála.