Fiskiskipið sem er í vanda statt austur af landinu heitir Jökull og hefur skráningarnúmerið ÞH299 en 17 manns voru um borð. Aðstæður á staðnum eru afar erfiðar. Allt tiltækt björgunarlið er á leið á staðinn eða komið þangað. Skipið er sokkið og allir skipverjar í sjónum. Björgunaraðgerðir standa nú yfir.Uppfært kl. 21:30Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni sem var að berast rétt í þessu segir að skipstjóri íslensks fiskiskips (Jökuls, innsk. DV) hafi haft samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar laust eftir klukkan 17 og lýst yfir neyðarástandi.
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Skipverjar í sjónum - Björgunaraðgerðir standa yfir