Pazos, ungur spænskur þjónn, sér ekki eftir því að hafa flutt til Íslands. Hann er ánægður með húsaleiguna og launin en viðurkennir að veðrið mætti vera betra.Í myndbandi á Instagram greinir Pazos frá kostum þess að hafa flutt til Íslands. Einkum nefnir hann húsaleiguna, 600 evrur, eða 82 þúsund krónur, sem eru dregnar beint af laununum hans. Sýnir hann frá íbúð sinni, sem ekki kemur fram hvar er, en hún er á jarðhæð með garði og palli. Inni má sjá eldhúsið, baðherbergið og svefnherbergi.
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði