„Ef þú ert að stoppa einhverja menn sem eru þekktir glæpamenn, átt þú þá að hætta að stoppa þá? Áttu þá bara að hætta og leyfa þeim að halda áfram að gera sína ólöglegu hluti?“ að þessu spyr lögreglumaður númer 2451 í þætti Kveiks sem sýndur var í kvöld.
Þar sem lögreglumaðurinn sinnir eftirliti á rúntinum með öðrum lögreglumönnum á kvöldvakt endurómar hann áhyggjur fjölda kollega sinna af því hvernig tekið sé á ofbeldi og hótunum gegn lögreglumönnum. Þeir segja afleiðingarnar litlar sem engar sökum þess hve illa sé staðið að rannsókn slíkra brota og þær felldar niður í unnvörpum.
Á sama tíma segir opinber tölfræði að tilkynningar um ofbeldi gegn lögreglu séu tvisvar sinnum fleiri nú en fyrir áratug, tilkynningar um hótanir þrisvar sinnum fleiri og vel yfir helmingur íslenskra lögreglumanna segist hafa orðið fyrir ofbeldi eða alvarlegum hótunum síðastliðna 12 mánuði.
Nýverið barst nefnd um eftirlit með lögreglu erindi þar sem kvartað er yfir starfsháttum héraðssaksóknara og hans fólks við rannsókn ofbeldis- og hótanakæra frá lögreglumönnum. Í kvörtuninni er vísað til afdrifa á þriðja tug kæra og athugasemdir gerðar við rannsóknir, meðferð þeirra og afdrif.
Kvörtunin sætir ekki bara tíðindum vegna þessa, heldur og ekki síður vegna þeirrar staðreyndar að hún er send í nafni 130 lögreglumanna, fjölda sem jafngildir fimmta hverjum starfandi lögreglumanni embættanna níu.
Þeir segja meðal annars:
„Tilfinning lögreglumanna sem brotaþola vegna þessara ákvarðana hefur því oft á tíðum verið sú að starfsmönnum héraðssaksóknara þyki það ekki alvarlegt að ráðist sé á lögreglumenn eða þeim sé hótað og traust lögreglumanna gagnvart héraðssaksóknara hefur því dalað verulega.“
Lögreglumenn spyrja sig þannig hver gæti þeirra á meðan þeir eiga að gæta almennra borgara?
Vantrú og -traust
„Ef við ætlum að láta þetta yfir okkur ganga þá erum við að leyfa fólki að komast upp með það.“
Með þessum orðum lauk varðstjórinn á næturvakt lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu stuttum fundi með vaktinni áður en þeir héldu út í föstudagsnóttina í byrjun nóvembermánaðar.
Hann hafði verið að brýna fyrir undirmönnum sínum að ef þeir skyldu verða fyrir ofbeldi, hótunum eða áreiti hvers konar ættu þeir að tilkynna það yfirmönnum vaktarinnar. Hann tiltók að þetta ætti sérstaklega við um hótanir sem beindust að fjölskyldum lögreglumanna og því að herja á heimili þeirra.
„Sama ef þið fáið högg, spörk eða það er verið að klípa í rassa eða eitthvað svona óviðeigandi, þá ætlum við að taka þétt á því,“ sagði varðstjórinn.
Það hljómar einkennilega að verið sé að ítreka fyrir lögreglumönnunum að hvorki megi né eigi að líðast að þeir séu beittir ofbeldi eða hótunum. Það segir samt ákveðna sögu af þeirri tortryggni og þeirri vantrú sem lögreglumenn virðast hafa á því að brot gegn þeim séu rannsökuð almennilega og hafi einhverjar afleiðingar. Þeir hiki jafnvel við að tilkynna um það þegar brotið er á þeim.
Átta ára fangelsi
Ofbeldi eða hótanir gegn lögreglunni, brot gegn valdstjórninni eins og það kallast, teljast sérstaklega alvarleg samkvæmt íslenskum lögum. Þess vegna eru refsingar við þeim líka strangari en vegna sambærilegra brota. Rökin eru þau að lögreglumönnum beri skylda til þess að fara inn í aðstæður sem aðrir geta forðast, meðal annars að eiga í samskiptum við hættulega einstaklinga, og þess vegna þurfi þeir sérstaka vernd.
Viðmælendur Kveiks telja að málið snúist ekki eingöngu um einstaklingana sjálfa, heldur um lögregluna sem heild. Það að lögreglumenn upplifi sig óörugga, til dæmis þegar kemur að því að hafa afskipti af hættulegum eða valdamiklum afbrotamönnum, geti óhjákvæmilega valdið því að lögreglumenn geri það ekki. Um leið sé þá grafið undan trausti og trúverðugleika lögreglunnar.
Frá árinu 2016 hefur embætti héraðssaksóknara séð um að rannsaka brot gegn valdstjórninni. Um leið tók embættið líka við rannsókn á brotum lögreglumanna í starfi. Áður voru þessi brot rannsökuð af lögregluembættunum sjálfum. Undanfarin misseri hafa lögreglumenn, talsmenn þeirra og lögreglustjórar gagnrýnt héraðssaksóknaraembættið fyrir það hvernig er staðið að þessum rannsóknum. Þau séu rannsökuð illa eða jafnvel ekki og óhóflega mörg þeirra séu felld niður, án þess að gefin sé út ákæra í þeim eða að þau fari fyrir dóm.
Þetta eigi til að mynda við í stórum og alvarlegum málum.
Fyrir fáeinum árum þótti óhugsandi að þekktir brotamenn gerðu út hópa manna til þess að framkvæma skipulagðar árásir á lögreglumenn eða heimili þeirra í hefndarskyni. Á innan við tveimur árum áttu tilfellin þó eftir að verða þrjú.
Afbrotafræðingur sagði fyrstu árásina viðvörunarmerki fyrir samfélagið.
Fjallað var um þessar þrjár árásir í Kveiksþættinum. Þar var aðdragandi þeirra og eftirmál rakin.
Bíll fjölskyldu brenndur
Finnur Eiríksson, eiginkona hans og ung börn vöknuðu upp við það í ágúst árið 2023 að eldur logaði á bílastæði framan við heimili þeirra. Finnur kveðst fyrst hafa orðið var við hróp að utan, þar sem talað var um eld og að kviknað hefði í einhverju.
„Þannig ég kíki út um gluggann og sé þá að það liggur eldur fyrir framan bílinn hjá mér.“
Nágrannar Finns og fjölskyldu hans höfðu orðið varir við tvo grunsamlega menn athafna sig við bíl fyrir framan hús þeirra. Skyndilega sást eldur gjósa upp frá bílnum og mennirnir forðuðu sér á rafmagnshlaupahjóli. Bíllinn brann og þótt tækist að ráða niðurlögum eldsins stóð hann ónýtur eftir.
Svíinn og síminn
Það liðu ekki nema klukkustundir þar til lögregla hafði handtekið þrjá unga menn og tekist hafði að staðsetja þá á vettvangi íkveikjunnar og afla sönnunargagna um aðkomu þeirra að málinu. Þremenningarnir voru á aldrinum 18-25 ára; allir af erlendu bergi brotnir. Við húsleit á heimilum þeirra fann lögreglan meðal annars bensínblauta skó og fatnað auk þess sem auðvelt reyndist að rekja hlaupahjólið sem þeir flúðu á til eins þeirra.
Myndir úr eftirlitsmyndavélum sýndu svo hvernig þeir höfðu setið um húsið dagana fyrir íkveikjuna.
Lögreglu virtist þó fljótt gruna að þremenningarnir væru ekki hvatamenn eða skipuleggjendur árásarinnar og við rannsókn á farsímum þeirra var hægt að rekja samskipti þeirra við þekktan brotamann sem þá sat í varðhaldi í Svíþjóð. Hann hafði dvalið hér á landi í talsverðan tíma þar til skömmu fyrir íkveikjuna og verið í sambandi við íslenska afbrotamenn.
Í samskiptum hans við þremenningana höfðu farið á milli upplýsingar um bíltegund, bílnúmer og heimilisfang Finns og fjölskyldu. Svíinn hafði líka fengið sendar myndir og myndbönd af húsi fjölskyldunnar frá þremenningunum og ljósmyndir af bensínbrúsa. Samskonar bensínbrúsa höfðu brennuvargarnir keypt og fyllt á bensínstöð stuttu fyrir brunann.
Á bílastæðinu og þar í kring var fjöldi bíla. Það að kveikt hefði verið í nákvæmlega þessum bíl var engin tilviljun. Eiginkona Finns er lögreglukona til margra ára og hefur lengst af starfað við rannsókn alvarlegra afbrota, fíkniefnalagabrota til dæmis. Það þótti augljóst strax í upphafi að íkveikjan tengdist störfum hennar.
Samkvæmt frásögn uppljóstrarans var það sami þekkti afbrotamaður sem eiginkonu Finns stafaði hætta af. Ábendingin þótti nægjanlega trúverðug til þess að gripið var til varúðarráðstafana og neyðarhnappi komið fyrir á heimilinu án þess þó að fjölskyldan léti það trufla daglegt líf sitt.
Málið horfði þó öðruvísi við eftir íkveikjuna. Þrjú börn bjuggu á heimilinu og það elsta orðið nægilega stálpað til þess að skynja hvað var í gangi og því ekki um annað að ræða en að útskýra fyrir honum hvað gengi á.
„Sem er náttúrulega mjög óþægilegt fyrir barn að skilja það að einhver kemur heim og kveikir í bílnum hjá manni.“
Vikurnar og mánuðina fyrir atvikið hafði margt bent til þess að þekktur afbrotamaður, sem kona Finns hafði átt þátt í að rannsaka og handtaka fyrir fíkniefnasmygl, teldi sig eiga við hana óuppgerðar sakir. Hann hafði til að mynda sent henni skilaboð og lækað við færslur hennar á sölusíðum fyrir barnaföt. Margt af þessu virkaði saklaust eitt og sér og raskaði ekki ró fjölskyldunnar. En fleiri viðvörunarljós höfðu kviknað.
„Fyrr á árinu hafði konan mín fengið neyðarhnapp vegna þess að uppljóstrari hafði sagt frá því að það ætti hugsanlega að gera eitthvað við hana,“ segir Finnur.
Grunsamlegt „Gúggl“
Svíinn var yfirheyrður í sænsku fangelsi, en við rannsókn á síma hans kom í ljós að hann hafði vistað upplýsingar um heimilisfang Finns og eiginkonu hans í síma sínum. Upplýsingarnar hafði hann svo sent einum þremenninganna. Þá hafði hann sömuleiðis framkvæmt Google-leit, fáeinum stundum eftir íkveikjuna, með leitarorðunum „policeman car onfire Iceland Reykjavik“ en síðan reynt að eyða ummerkjum um þá netleit.
Þá hafði ekkert komið fram opinberlega um að kveikt hefði verið í bíl lögreglumanns í Reykjavík.
Í yfirheyrslunni ytra þvertók sænski maðurinn þó fyrir að vita nokkuð um málið en gat litlar skýringar gefið á upplýsingum sem fundust í síma hans eða misvísandi svörum sínum, sem stönguðust á við gögn málsins. Hann neitaði svo einfaldlega að svara því hvort og þá hver hefði fengið hann til þess að hafa milligöngu um íkveikjuna, sem rannsakendur töldu þó augljóst að hann hefði gert.
„Við vissum svo sem ekki nákvæmlega hverjir enduðu á því að koma hérna og kveikja í bílnum. En grunuðum náttúrulega alltaf hverjir það voru sem stóðu þar á bak við,“ segir Finnur og vísar til þess að Svíinn hafi aldrei orðið á vegi eiginkonu hans, eða haft ástæðu til að bera hefndarhug til íslensku lögreglunnar yfirleitt.
Bræðurnir birtast
Íslensku bræðurnir höfðu hins vegar ástæðu til hefnda, og rannsakendur virðast hafa talið að þeir stæðu raunverulega að baki íkveikjunni. Það er að segja maðurinn sem hafði, ásamt bróður sínum, fengið fjölda dóma, meðal annars fyrir stórfellt fíkniefnasmygl sem kona Finns hafði komið að rannsókn á.
Í síma Svíans fundust mikil samskipti á Signal við tvo menn sem lögregla taldi nær öruggt að væru íslensku bræðurnir. Nöfn þeirra höfðu meðal annars verið notuð sem notendanöfn þeirra reikninga sem áttu í samskiptum við Svíann, en nöfnunum hafði verið breytt skömmu fyrir íkveikjuna. Stillingum sem sáu til þess að samskipti í skilaboðum eyddust sjálfkrafa hafði einnig verið breytt svo að þau eyddust á nokkrum mínútum.
Samskipti Svíans við þessa menn voru mest og tíðust dagana í kringum íkveikjuna sjálfa. Um var að ræða bæði símtöl og skilaboð. Annar íslensku bræðranna var jafnframt talinn hafa verið í sambandi við einn þeirra þriggja sem kveiktu í bílnum í gegnum Instagram-reikning í sínu nafni á þessum sama tíma.
Þremenningarnir og Svíinn neituðu allir að tjá sig um tengsl sín við íslensku bræðurna í yfirheyrslum. Gilti þá einu hvort spurt væri um samband viðkomandi við þá, samskipti, beina þátttöku eða frumkvæði að íkveikjunni.
Rannsakendur virtust samt frá upphafi telja að málið hefði einhver tengsl við bræðurna.
Það kom því Finni og eiginkonu hans í opna skjöldu að sjá að þrátt fyrir allt ofantalið hefðu rannsakendur aldrei séð ástæðu til að yfirheyra bræðurna í rannsókn málsins.
„Það er í rauninni óskiljanlegt,“ segir Finnur.
Hótað af „konungi glæpamanna“
Vonbrigðum fjölskyldunnar með rannsókn héraðssaksóknara á íkveikjunni lauk þó ekki þar. Málið var frá upphafi sagt vera rannsakað sem brot gegn valdstjórninni, brot sem varðar allt að átta ára fangelsi.
Það kom þeim því í opna skjöldu að lesa um það í fjölmiðlum einu og hálfu ári síðar að búið væri að gefa út ákæru í málinu. Ekki fyrir valdstjórnarbrot, heldur eignaspjöll.
Á þeim brotum er sá regin munur að refsing fyrir þau síðarnefndu er mun vægari auk þess sem það þýddi að ekki væri lengur litið svo á að íkveikjan í bíl hjónanna tengdist störfum eiginkonu Finns.
„Eins og þetta sé ekki neins annars máls nema bara okkar að díla við og fara í gegnum.“
Héraðssaksóknari skýrði ákvörðunina þannig að þremenningarnir hefðu sagst ekki vita að bíllinn sem þeir kveiktu í væri í eigu lögreglumanns. Fyrir vikið teldi embættið ekki hægt að sanna að um brot gegn valdstjórninni væri að ræða.
Þremenningarnir höfðu í yfirheyrslum ekki neitað því að hafa kveikt í bílnum. Þeir sögðu íkveikjuna hefndaraðgerð að beiðni ónefndra manna. Einn þeirra sagðist það eitt vita að þar væri um að ræða „hættulegt fólk í einhverri klíku sem væri í glæpastarfsemi.“
Annar vitnaði svo um að Svíinn væri „konungur glæpamanna í Svíþjóð“ sem hefði fljótlega eftir að kynni tókust með þeim farið að hóta sér öllu illu, ef hann gerði ekki eins og honum væri skipað. Það hefði til að mynda gerst í aðdraganda þess að kveikt var í bílnum. Þennan framburð dró maðurinn til baka síðar án skýringa.
Grímur næstur
Fjórum mánuðum eftir að kveikt var í bíl Finns og konu hans átti sér aftur stað svipað atvik. Í þetta skiptið við heimili yfirmanns lögreglukonunnar.
„Ég var nú farinn til vinnu og, og konan mín ætlaði bara að fara á bílnum eitthvert og henni fannst bara eins og það væri, hún þyrfti einhvern veginn að skafa rúðuna. En áttar sig síðan á því að þetta er sprey,“ segir Grímur Grímsson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar deildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Í Kveik rifjaði hann upp skemmdarverkin við heimili sitt nokkrum dögum fyrir jól 2023.
Eins og í fyrra málinu þótti lögreglu augljóst að málið tengdist störfum Gríms í lögreglunni og var málið því rannsakað í samræmi við það, það er að segja sem brot gegn valdstjórninni.
Myndavélar í bílnum náðu atvikinu á myndband og sýndu manninn koma í gegnum bakgarða nágranna að bíl Gríms, úða bílinn og hverfa jafn fljótt sömu leið og hann kom.
Þótt maðurinn hefði reynt hvað hann gat til að þekkjast ekki bárust fljótt trúverðugar ábendingar um hver þarna gæti verið að verki eftir að mynd var birt af manninum í fjölmiðlum. Það varð til þess að Íslendingur á þrítugsaldri var handtekinn.
Hvorki Grímur né embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fengu upplýsingar um málið á meðan það var til rannsóknar hjá héraðssaksóknara. Það var ekki fyrr en Grími barst bréf um að málið hefði verið látið niður falla.
„Þá þykir þetta ekki líklegt til sakfellis. Þó svo að við rannsókn málsins hafi komið í ljós að það hafi verið maður grunaður um verknaðinn,“ segir Grímur.
Útbíaður með slökkt á símanum
Þegar gögn úr rannsókninni eru skoðuð kemur í ljós að talsvert meira en ábendingar utan úr bæ þóttu tengja manninn við skemmdarverkið. Við húsleit á heimili hans fannst til að mynda fatnaður sem var sláandi líkur þeim sem sást á myndbandi úr bílnum. Málning eins og sú á bílnum fannst einnig á skóm mannsins.
Rannsókn leiddi jafnframt í ljós að slökkt hafði verið á farsíma hans í 35 mínútur kvöldið sem skemmdarverkið var framið, einmitt á þeim tíma sem það átti sér stað. Sími hans hafði einnig tengst farsímasendi skammt frá heimili Gríms í aðdraganda atviksins. Upplýsingar úr snjallúri mannsins sýndu svo að skrefafjöldi hans hafði margfaldast og þar með yfirferð hans á þessum sama tíma.
Maðurinn var yfirheyrður tvisvar. Í fyrra skiptið neitaði hann að tjá sig. Í því síðara neitaði hann sök en vildi ekki gefa upp hvar hann hefði verið þegar skemmdarverkið var framið. Þrátt fyrir þetta taldi héraðssaksóknari ekki nægar líkur á sakfellingu. Málið fór aldrei fyrir dóm og var fellt niður.
Grímur segir það vissulega vera mat ákærandans hvort ákært sé eða ekki. Það sé hins vegar þannig að matið geti verið misjafnt eftir því hvaða ákærandi fjallar um málið.
„Þannig að ég var ekki sáttur kannski við það að það hafi ekki verið látið reyna á þetta.“
Sömu símavinir
Þegar Kveikur ræddi fyrst við þá Grím og Finn í byrjun árs hafði enn ekki fallið dómur í máli þremenninganna sem dæmdir voru fyrir íkveikjuna í bíl Finns og fjölskyldu. Dómur féll í málinu í lok október en þar voru þremenningarnir sakfelldir fyrir eignaspjöll. Tveir fengu átta mánaða skilorðsbundna dóma og einn tíu mánuði skilorðsbundna.
„Það er nokkuð ljóst út frá dómnum að það eru einhverjir aðrir sem greiða fyrir þetta og það er ekkert farið á eftir þeim. Þeir eru ekki ákærðir og einhverjir eru ekki einu sinni yfirheyrðir fyrir málið,“ segir Finnur.
Refsingin sé auk þess í engu samræmi við brotið. Niðurstaðan sé þannig að þau fjölskyldan hafi enga ástæðu til að halda að það geti ekki orðið einhverjir eftirmálar. Þau upplifi sig alls ekki öruggari eftir dóminn.
„Hver er fælingarmátturinn í þessu?“ spyr Finnur.
Kveikur fékk aðgang að rannsóknargögnum í báðum málunum, sem komu upp á seinni hluta árs 2023. Við fyrstu sýn virtust þau ekki hafa aðra tengingu en þá að beinast að tveimur lögreglumönnum, eiginkonu Finns og yfirmanni hennar, Grími Grímssyni.
Tengingarnar reyndust þó fleiri og að öllum líkindum þýðingarmeiri.
Við skoðun rannsóknargagna úr máli Gríms koma í ljós upplýsingar um samskipti mannsins sem grunaður var í því máli, við sama þekkta afbrotamanninn og komið hafði ítrekað við sögu í rannsókn fyrra málsins. Þann sama og eiginkona Finns hafði verið vöruð við í aðdraganda íkveikjunnar, hafði sett sig í samband við hana á samfélagsmiðlum og lögregla taldi að hefði ásamt bróður sínum verið í þéttu og ítrekuðu sambandi við grunaða og dæmda í aðdraganda íkveikjunnar.
Maðurinn sem grunaður var í máli Gríms hafði átt í talsverðum samskiptum við þennan mann, annan íslensku bræðranna, misserin og mánuðina áður en bíll Gríms var skemmdur við heimili hans.
Samskiptin höfðu farið fram í gegnum Signal, í símtölum og skilaboðum sem hafði verið eytt. Þessi samskipti voru þó aldrei borin undir þann grunaða í yfirheyrslum. Hann var engu að síður spurður um tengsl sín við íslensku bræðurna. Hann neitaði að tjá sig um það í yfirheyrslunum.
Rétt eins og í fyrri rannsókninni var hvorugur bræðranna kallaður til yfirheyrslu í seinna málinu.
Erfitt og furðulegt
Hvorki Finnur né Grímur vissu af þessum tengslum málanna tveggja fyrr en nýverið þegar Kveikur upplýsti þá um þau.
„Það er náttúrulega erfitt að heyra það svona eftir á í rauninni, út af því að við vissum af hinu málinu og það hafði ekkert farið neitt áfram,“ sagði Finnur í samtali við Kveik nýlega.
„Svo kemur í rauninni í ljós að þau virðast vera frekar vel tengd þessi mál og að í rauninni sömu aðilar standi á bak við það að báðir þessir verknaðir séu framkvæmdir. En það virðist ekki okkur vitandi að það hafi verið rætt við þá, sem okkur þykir mjög furðulegt og skrítið.“
Grímur tekur í sama streng og segir upplýsingarnar setja málið í nýtt samhengi.
„Þá eru náttúrulega þarna gögn sem benda til samskipta þessa manns sem var grunaður um skemmdirnar á bílnum mínum við þekkta brotamenn sem mér finnst sérstakt að hafi ekki verið elt meira.“
Grímur segir að þegar lyktir beggja mála séu skoðaðar, að þessum nýju upplýsingum viðbættum, sé óhjákvæmilegt að velta fyrir sér hver sé raunverulega refsiverndin í lögum um brot gegn valdstjórninni sem lögreglumenn eiga að njóta. Þessi mál séu ekki bara árásir á hann, fjölskyldu hans og þeirra hinna.
„Þetta er líka árás á lögregluna.“
Grímur kærði niðurfellingu málsins ekki til ríkissaksóknara eftir að rannsókn þess var hætt. Hann kvaðst á þeim tíma hafa verið ósáttur við lyktir þess en viljað koma málinu frá og treyst því að reynt hefði verið til þrautar að rannsaka málið.
Í ljósi þess sem nú hafi komið fram í dagsljósið sjái hann eftir þeirri ákvörðun sinni.
„Vegna þess að það er þarna svo mikið af, af upplýsingum sem hefði getað bent ríkissaksóknara á að hefði ekki verið fylgt eftir nægilega mikið eftir.“
Vilja vera í friði með sín afbrot
„Árás á einn lögreglumann er árás á löggæsluna alla – og árás á samfélag okkar.“
Þetta skrifaði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í Facebook-færslu í júní 2025 og bætti við:
„Við líðum ekki ofbeldi gegn lögreglumönnum.“
Tilefni þessara skrifa ráðherrans voru nýskeðir atburðir sem vakið höfðu óhug, ekki bara meðal lögreglumanna og fjölskyldna þeirra. Fjölmiðlar greindu frá því að hópur vopnaðra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili hans. Ástæðan var sögð vera hefndaraðgerð vegna afskipta lögreglumannsins af þekktum brotamanni við umferðareftirlit.
Formaður Landssambands lögreglumanna sagði við þetta tilefni að atvikið sýndi skelfilegan veruleika sem lögreglumenn ættu því miður á hættu að takast á við. Hann sagði að ekki væri nóg að gert til þess að taka á málum sem þessum og benti á dæmi Gríms og Finns.
„Ég heyri það í dag að menn óttast dálítið að það verði ekki gert nógu mikið úr þessu og að alvarleikinn komi ekki í ljós,“ sagði formaðurinn, Fjölnir Sæmundsson, í fréttum RÚV. Hann sagði tilganginn með þessum hótunum og ógnunum einfaldlega að fæla lögreglumenn frá starfinu, eða því að hafa afskipti af þessum einstaklingum.
„Þetta er fólkið sem hótar þessum lögreglumanni sem vill bara fá að vera í friði með sín afbrot.“
Fjölskyldan flúði heimilið
Lögreglumaðurinn sem þarna var fjallað um sagði sögu sína í Kveik, gegn því að hann hlyti nafnleynd. Það segist hann gera til að vernda fjölskyldu sína enda hafi hann fulla ástæðu til.
„Ég held að almenningur geri sér ekki grein fyrir því hversu ítrekað ofbeldi eða hótanir gagnvart lögreglumönnum sé,“ segir lögreglumaðurinn og rekur hvernig hann hefur á sex ára ferli í lögreglunni þurft að takast á við ítrekaðar hótanir og ofbeldi í daglegum störfum sínum.
„Ég hef verið bitinn, það hefur verið sparkað í mig, ég hef verið kýldur, það hefur verið hótað að skera á mig háls, skjóta mig, kveikja í mér, lemja mig, hótað að fara heim til mín og drepa mig og fjölskyldu mína.“
Hann segir að þetta sé eitthvað sem margir kollegar hans verði fyrir oft á ári. Það hafi hins vegar orðið breyting á málunum síðustu misseri þegar alvarlegri málum hafi fjölgað og þau hoggið nærri heimilum og fjölskyldum lögreglumanna.
Sjálfur er hann dæmi um það, eftir atburðina í júní 2025.
Forsaga málsins er, eins og áður sagði, afskipti lögreglumannsins af þekktum afbrotamanni vegna umferðarlagabrota.
Stuttu síðar á maðurinn að hafa gefið sig á tal við annan lögreglumann, sem var við störf á tónleikum, og boðist til að greiða honum fyrir nafn og persónuupplýsingar þess sem hafði haft af honum afskipti.
Fáeinum dögum síðar barst lögreglu svo ábending um að ljósmynd af lögreglumanninum og lögreglunúmer hans með ósk um nafn hans og heimilisfang væri í dreifingu meðal undirheimamanna, þar sem til stæði að kenna honum lexíu og mannasiði.
Samstundis voru sérstakar öryggisráðstafanir gerðar við heimili lögreglumannsins. Skömmu síðar dró þó til tíðinda. Lögreglumaðurinn var þá á leið heim eftir vakt.
„Ég sé fimm aðila í bílakjallaranum hjá mér. Einhverjir af þeim voru með lambhúshettur og ég sá að þeir áttu ekki heima þarna og rötuðu ekkert um og voru greinilega að leita að einhverju.“
Lögreglumaðurinn var vegna öryggisráðstafana með talstöð á sér og kallaði eftir aðstoð sem barst skömmu síðar.
„Þeir voru allir handteknir og þá kom í ljós að þeir, einhverjir af þeim voru vopnaðir hnífum líka.“
Vegna atviksins þótti ekki óhætt að maðurinn og fjölskylda hans dveldu á heimili sínum og voru þau flutt í húsnæði á vegum lögreglunnar, þar sem þau þurftu að dvelja um tíma.
Unglingar með vopn og leiðbeiningar
Alls voru átta handteknir um kvöldið, þeirra á meðal Íslendingurinn sem sagður var hafa óskað eftir, og boðið greiðslu fyrir, upplýsingar um lögreglumanninn. Af þessum átta voru fimm staddir í bílakjallaranum, þeir voru allir unglingar á aldrinum 15 til18 ára, af erlendu bergi brotnir. Þeir neituðu allir sök en skýringar þeirra á því að hafa verið grímuklæddir og vopnaðir í læstum bílakjallara stönguðust á eða þóttu ótrúverðugar. Við skoðun á síma eins þeirra kom í ljós að hann hafði verið að leita að bíl, sömu tegundar og lögreglumaðurinn átti.
Meintur höfuðpaur neitaði líka sök og sagðist ekki muna til þess að hafa reynt að fá eða viljað greiða fyrir upplýsingar um lögreglumanninn. Ef svo hefði verið, væri það einungis vegna þess að hann hygðist tilkynna hann fyrir áreitni gegn sér.
Mönnunum var svo öllum sleppt að loknum yfirheyrslum.
Sléttu ári síðar, í júní síðastliðnum, tilkynnti héraðssaksóknari að málið hefði verið fellt niður. Það væri ekki líklegt til sakfellingar.
„Ég fékk gögnin alveg mörgum mánuðum áður en það var fellt niður. Og þegar ég las yfir gögnin þá hélt ég að ég hefði bara fengið einhvern svona vitlausan gagnapakka. Ég skildi ekki af því að það var ekki búið að vinna neitt í málinu, nema yfirheyra þá sem voru handteknir,“ segir lögreglumaðurinn sem kærði niðurfellinguna til ríkissaksóknara, sem gagnrýndi rannsókn héraðssaksóknara harðlega í úrskurði nú í lok október.
Skiluðu símunum óskoðuðum
Það sem sýna þurfti fram á en tókst ekki í rannsókninni voru tengsl íslenska höfuðpaursins við fimmenningana í bílakjallaranum, í hvaða tilgangi þeir komu þangað og hvort reynt hefði verið að komast yfir persónuupplýsingar um lögreglumanninn.
Farsímar mannanna voru þar lykilatriði. Þrír farsímar voru haldlagðir í húsleit hjá Íslendingnum.
Símarnir voru hins vegar aldrei rannsakaðir og afhentir eigendum sínum mánuði síðar.
Ríkissaksóknari segir um þetta í úrskurði sínum. „Þessi annmarki á rannsókn málsins er aðfinnsluverður, en ljóst er að þar sem búið er að afhenda farsímana verður ekki úr honum bætt.“
Ríkissaksóknari segir svo að fyrir vikið sé sönnunarstaða málsins með þeim hætti að ekki sé hægt annað en að fella rannsókn málsins niður sem valdstjórnarbrots.
Héraðssaksóknari er svo áfram gagnrýndur fyrir að hafa ekki reynt að upplýsa um fjölda símtala fimmmenninganna á sama tíma og þeir voru í bílakjallaranum, auk þess sem að ekkert bendi til þess að kannað hafi verið hvort eftirlitsmyndavélar væru í bílageymslunni eða óskað eftir upptökum úr þeim.
Ríkissaksóknari skipaði héraðssaksóknara að klára að rannsaka þann anga málsins sem eftir var, meint vopnalaga- og húsbrot fimmmenninganna, en gagnrýndi um leið að það hefði ekki verið gert fyrr.
Lögreglumaðurinn segir að jafnvel þó að hann hafi í ljósi reynslunnar ekki búist við miklu af héraðssaksóknara hafi það samt komið honum á óvart að embættið hefði fellt málið niður í heild sinni án þess einu sinni að ákæra fyrir húsbrot eða sekta fyrir vopnalagabrot. Þá séu auk þess fjölmörg atriði sem ekki hafi verið sinnt í rannsókninni. Úr þeim þýðingarmestu verði ekki bætt.
„Af því að það var búið að skila þessum símum sem voru sönnunargögn sem þurfti til að sanna málið ef það væri hægt.“
Sænska leiðin?
Hlutfall lögreglumanna sem segjast hafa orðið fyrir hótunum eða ofbeldi hefur farið upp á við víðar á Norðurlöndunum, til dæmis í Svíþjóð þar sem nefnd á vegum ríkisins komst að þeirri niðurstöðu árið 2024 að tölfræði benti til grófari og fleiri brota. Finnur tengir það sem hefur átt sér stað hér á landi við ástandið í Svíþjóð, þar sem glæpasamtök nota gjarnan ungmenni til þess að fremja glæpi.
„Þetta er í rauninni bara það sem hefur sést svo vel í Svíþjóð þar sem ungir strákar eru fengnir til verknaðar út af því að það er bæði ódýrt, þeir fá lága dóma eins og sést hér og þá komast þeir upp með að framkvæma svona og hræða í rauninni þá sem þeir þurfa,“ segir Finnur.
Grímur segir að áður hafi verið einhverskonar órætt samkomulag um að glæpamenn veittust ekki að lögreglumönnum.
„Síðan verður einhver breyting,“ segir Grímur.
Reiði innan stéttarinnar
Málin sem rakin hafa verið hér á undan eru alls ekki þau einu þar sem sama stef heyrist í gagnrýni á rannsókn og afgreiðslu héraðssaksóknaraembættisins.
Kvörtunin sem lögreglumenn sendu nefnd um eftirlit með lögreglu, og nefnd var hér í upphafi, snýr að hátt í 30 málum af þessum toga. Lögreglumennirnir segja þau ýmist illa eða alls ekki rannsökuð og vinnubrögð embættisins ófullnægjandi.
Kvörtunin var send í nafni 130 lögreglumanna, eða fimmta hvers starfandi lögreglumanns í landinu. Það eitt og sér er einsdæmi og sagt til marks um kraumandi reiði innan stéttarinnar.
Ósammála því að málin séu illa rannsökuð
Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari segir leiðinlegt að heyra þessar óánægjuraddir.
„Og vont að lögreglumenn sem leita til okkar með sín mál upplifi það að við séum ekki að sinna þeim,“ segir Karl Ingi en að það sé mat embættisins að málunum sé sinnt með fullnægjandi hætti. Hann vísar til tölfræði frá þessu ári máli sínu til stuðnings sem sýnir fram á að héraðssaksóknari hefur ákært í 90 málum sem varða ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum á þessu ári. Á sama tímabili hefur héraðssaksóknari fellt niður 17 mál, hætt rannsókn í 47 málum, vísað 6 frá og fallið frá saksókn í 26 málum.
„Þannig að, að málin eru að fá málalok.“
Karl segir jafnframt að í þeim málum sem rakin voru hér á undan hafi rannsókn verið fullnægjandi. „Sönnunargögnin voru þannig að það var ekki unnt að sýna fram á að þessi afbrot sem þarna voru framin tengdust lögreglumönnunum. Við höfðum ekki sönnunargögn,“ segir Karl Ingi sem telur að héraðssaksóknari hafi gengið nægilega langt í öflun sönnunargagna.
Það liggur alveg fyrir að í tveimur af þessum málum þar sem eru skemmdir bílar og kveikt í bílum hjá lögreglumönnum, í báðum málum beindust böndin að sömu einstaklingunum sem þó voru ekki yfirheyrðir?
„Ég get fullyrt það að ef böndin beinast að einhverjum ákveðnum aðilum að lögreglan eltir það,“ segir Karl Ingi.
En það er ekki að sjá í þessu samt?
„Ég er bara ekki sammála því,“ segir Karl Ingi.
Hann segir þó skýrt að eitthvað þurfi að gera því það gangi ekki að um helmingur mála sem komi til embættisins sé felldur niður. Eitt lögregluembætti sker sig úr þegar kemur að fjölda tilkynninga um tilvik þar sem grunur leikur á ofbeldi gegn lögreglumönnum. Það er embættið á Norðurlandi eystra. Þaðan kemur fimmta hver tilkynning. Í hlutfalli við íbúafjölda eru tilkynningar frá Norðurlandi eystra margfalt fleiri en hjá öllum hinum embættunum. Að sama skapi er hlutfall mála sem felld eru niður hæst hjá því embætti. Spurður um það hvort sú tölfræði bendi til þess að óþarflega mörg mál séu send frá embættinu til héraðssaksóknara segir Karl:
„Það kann að vera.“
Þá jánkar hann því að það geti haft áhrif á rannsókn annarra mála þegar mikill fjöldi kemur inn. „Eftir því sem málunum fjölgar að þeim meiri tími fer í rannsóknir og á meðan sitja þá kannski önnur mál til hliðar. Það segir sig sjálft.“
Velta fyrir sér að hætta
Ónefndi lögreglumaðurinn, sá sem þurfti að yfirgefa heimili sitt með fjölskyldu sinni, segir að atvikið hafi haft mikil áhrif á hann. Hann hafi velt fyrir sér hvort hann ætti að halda áfram að vinna sem lögreglumaður og hvort hann þyrfti að breyta vinnubrögðum sínum með einhverjum hætti, til þess að verja sjálfan sig.
„Þegar aðilar vilja hefna fyrir afskipti lögreglu eða koma í veg fyrir afskipti lögreglu, þá virðist það bara bitna á lögreglumanninum sjálfum,“ segir lögreglumaðurinn.
Eiginkona Finns hefur einnig velt því fyrir sér með fjölskyldu sinni hvort það sé þess virði að vinna áfram eftir þeirra reynslu.
„Sérstaklega þegar maður á börn,“ segir Finnur. „En ég held að maður megi ekki leyfa þessum einstaklingum að vinna.“
Athugasemd: Í þætti Kveiks var ranglega farið með nafn Finns Eiríkssonar og hann sagður Björnsson. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.