Þann 21. október voru tvö fjölskyldufyrirtæki á Selfossi, í eigu sömu eigenda, lýst gjaldþrota. Samkvæmt heimildum DV á lítil björgunarsveit, Bára á Djúpavogi, með rúmlega 50 skráða félaga, tugmilljóna kröfu á hendur öðru fyrirtækinu, vegna viðskipta með stálgrindarhús sem voru pöntuð og greidd, en hafa aldrei borist. Félögin sem lýst voru gjaldþrota 21. október eru Slípun-Kjartansstaðir, sem hafði sögun, heflun og fúavörn á viði að starfsemi, og Byggjum ehf, sem rak Byggjum saman, heildverslun með timbur, byggingarefni og hreinlætistæki.
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi