Samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins kom Christian á heimili fósturforeldra sinna Bente og Jes Thorup Børjesson fjögurra ára gamall. Hann hafði áður búið á barnaheimili.
Fullorðinsættleiðingar auðveldari en áður
Áður en lögunum var breytt núna um síðustu áramót var aðeins hægt að ættleiða fullorðinn einstakling hefði sá sem sækti um slíkt alið hann upp í um þrjú ár áður en hann náði átján ára aldri. Nú er aðeins gerð krafa um að til staðar sé samband sem líkist sambandi foreldris og barns, svokallað forældre-barn-lignende forhold.
Sá ættleiddi verður þá í lagalegum skilningi barn nýju foreldranna og upprunalegu foreldrarnir teljast ekki lengur fjölskylda hans. Hann erfir nýju foreldrana en ekki þá upprunalegu og líffræðileg systkini eru ekki lengur systkini í lagalega séð. Hann má taka upp eftirnafn nýju foreldranna og halda því gamla vilji hann það.
Ættleiðingin er endanleg og aðeins hægt að ógilda hana ef allir sem koma að málinu eru sammála, með umsókn til Ankestyrelsen, samkvæmt Familieretshuset sem fer með fjölskyldumál í Danmörku.
Ekki bara tilkynning í pósthólfið
Christian segir að þó að hann hafi alltaf litið á sig sem hluta af fjölskyldunni hafi ættleiðingin breytt einhverju.
„Þótt þetta væri tilkynning í e-Boks og undirskrift í MitID var tilfinningin miklu meiri,“ segir hann.
Bente tekur undir það.
„Nú get ég kallað þig son minn.“